Á döfinni

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2016

Hagsmunasamtök heimilanna boða til aðalfundar 31. maí næstkomandi, kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel Cabin við Borgartún 32, á 7. hæð.

Dagskrá:

  1. Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
  2. Skýrsla stjórnar: Vilhjálmur Bjarnason, formaður
  3. Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
  4. Tillaga stjórnar um félagsgjöld
  5. Breytingar á samþykktum
  6. Kosning 7 aðalmanna í stjórn
  7. Kosning 3-7 varamanna í stjórn
  8. Kosning skoðunarmanna
  9. Önnur mál

Framboðsfrestur til stjórnar er 7 dögum fyrir aðalfund. Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Fundargögn verða birt á vefsíðu samtakanna fyrir fundinn, ásamt kynningu á frambjóðendum til stjórnar.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta!

 

Lesa áfram...

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 21. maí 2015

Félagsmenn vinsamlegast athugið.

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna verður haldinn fimmtudagskvöldið 21. maí 2015 kl. 20:00 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.

Dagskrá:

  1. Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
  2. Skýrsla stjórnar: Vilhjálmur Bjarnason, formaður
  3. Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
  4. Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjöld
  5. Tillaga um breytingu á samþykktum
  6. Kosning 7 aðalmanna í stjórn
  7. Kosning 3-7 varamanna í stjórn
  8. Kosning skoðunarmanna
  9. Önnur mál

Framboð til stjórnar má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Undir dagskrárlið nr. 5 mun verða fjallað um eftirfarandi tillögu um breytingu á samþykktum HH:

"Á eftir 2. mgr. 6. gr. komi ný mgr. svohljóðandi: Framboð til stjórnar skal berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Hafi ekki borist nægur fjöldi framboða er stjórn heimilt að óska eftir framboðum á aðalfundi."

Frá stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Lesa áfram...

Aðalfundur HH í kvöld, fimmtudag

Aðalfundur HH verður í kvöld, fimmtudag 31. maí kl. 20:00-22:30 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg.


Stjórn HH hvetur félagsmenn til að gefa sér tíma til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á val stjórnar, breytingar á lögum samtakanna og fylgjast almennt með störfum samtakanna. Samtökin starfa á lýðræðislegum grunni eftir lýðræðislegum hugsjónum og því aðhald og aðkoma félagsmanna mikilvæg.

Dagskrá fundarins verður sem hér segir


1. Setning

2. Skýrsla stjórnar:  Andrea Ólafsdóttir, formaður stjórnar

3. Reikningar samtakanna:  Ólafur Garðarsson, gjaldkeri stjórnar

4. Lagabreytingar (sjá fundargögn á heimasíðu)

5. Kosning 7 manna stjórnar (sjá framboð til stjórnar á heimasíðu)

6. Kosning 7 varamanna

7. Kosning skoðunarmanna næsta árs

8. Önnur mál

a.   Umsókn HH að Landssamtökum heimilanna

Ragnar Þór Ingólfsson

b.  Tillaga stjórnar að árgjaldi 2012

Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa þannig bein áhrif á stefnu og starfsemi samtakanna.  Vinsamlega athugið að aðeins skráðir félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarstarfa og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

 

Lesa áfram...

Niðurstöður aðalfundar 2021

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2021 var haldinn 23. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Bjarnason varaformaður
  • Sigríður Örlygsdóttir gjaldkeri
  • Einar Valur Ingimundarson ritari
  • Hafþór Ólafsson meðstjórnandi
Lesa áfram...

Ályktun aðalfundar 2021

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna á árinu 2021 var haldinn 23. febrúar síðastliðinn. Fyrir hönd félagsmanna og sem æðsta vald í málefnum samtakanna ályktaði fundurinn eftirfarandi:

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna lýsir því yfir að ekki komi til greina að selja ríkisbankana, hvorki að hluta né öllu leyti, fyrr en Alþingi hafi séð til þess að farið verði ofan í saumana á þeirri meðferð sem heimilin máttu þola í kjölfar bankahrunsins af hálfu fjármálafyrirtækja og stjórnvalda, með því að láta gera Rannsóknarskýrslu heimilanna.

Hagsmunasamtök heimilanna fóru fyrst í mars á síðasta ári fram á að þak yrði sett á verðtryggingu lána heimilanna til að vernda þau fyrir áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Þeirri beiðni var mætt af fálæti og fjármálaráðherra fullyrti ítrekað að verðbólga myndi ekki fara fram úr verðbólgumarkmiði. Enn fremur lofaði fjármálaráðherra því að ef svo færi yrði gripið til aðgerða. Nú hefur þetta gerst og Hagsmunasamtök heimilanna reynst sannspá. Samt bólar ekkert á þeim vörnum sem lofað var.

Lesa áfram...

Ársskýrsla HH 2020-2021

Samkvæmt venju eru fundargögn birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundar í formi ársskýrslu.

Félagsmenn eru minntir á aðalfundinn kl. 20:00 þriðjudaginn 23. febrúar 2021, í nýju húsnæði Hjálpræðishersins á Íslandi að Suðurlandsbraut 72, 108 Reykjavík.

Lesa áfram...

Aðalfundur 2021

Kæru félagsmenn,

Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, þriðjudagskvöldið 23. febrúar 2021 kl. 20:00, í nýju húsnæði Hjálpræðishersins á Íslandi að Suðurlandsbraut 72, 108 Reykjavík.

Lesa áfram...

Niðurstöður aðalfundar 2020

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2020 var haldinn 25. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Bjarnason varaformaður
  • Sigríður Örlygsdóttir gjaldkeri
  • Hólmsteinn Brekkan ritari
Lesa áfram...

Ársskýrsla HH 2019-2020

Samkvæmt venju eru fundargögn birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundar í formi ársskýrslu sem inniheldur jafnframt helstu upplýsingar um fundarefni samkvæmt boðaðri dagskrá.

Félagsmenn eru minntir á aðalfundinn kl. 20:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020, í húsnæði Hjálpræðishersins að Álfabakka 12 í Mjóddinni (gengið inn að sunnanverðu).

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum