Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Yfir 60 heimili seld nauðungarsölu í september vegna seinagangs innanríkisráðherra

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) sendu þann 7. september erindi til allra sýslumannsembætta landsins þar sem óskað var eftir upplýsingum um fjölda fullnustugerða fyrri hluta septembermánaðar. Aðeins helmingur sýslumanna hafa skilað svörum, þrátt fyrir alvarleika málsins og ítrekun þann 10. september og sýna tölur frá þeim að yfir 60 heimili eru í hættu. Þar af hefur síðustu daga farið fram endanlegt uppgjör fjölda eigna sem voru á framlengdum samþykkisfresti.

Fyrir síðustu áramót voru samþykkt á Alþingi lög um frestun á nauðungarsölum fram yfir 1. september til þess að gefa skuldurum svigrúm þar til boðaðar aðgerðir stjórnvalda til skuldalækkana kæmu til framkvæmda. Frestunin var ekki framlengd þrátt fyrir að ljóst væri að úrvinnsla skuldalækkunar myndi tefjast fram yfir upphaf septembermánaðar. Það var ekki fyrr en 9. september, eftir áskoranir frá Hagsmunasamtökum heimilanna og auglýsingar í fjölmiðlum, sem innanríkisráðherralagði fram frumvarp um framlengingu frestunar á nauðungarsölum, sem vonir standa til að verði að lögum síðar í þessum mánuði. 

Ætla má að margir þeirra sem fengu frestun endanlegra fullnustugerða um síðustu áramót séu í sömu sporum í dag og bíði enn eftir niðurstöðum skuldaleiðréttinga. Hagsmunasamtök heimilanna skora á innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, að svara eftirfarandi spurningu: “Til hvaða aðgerða hyggst innanríkisráðherra grípa í því skyni að koma þeim einstaklingum og fjölskyldum til bjargar sem hafa misst eða standa frammi fyrir því að missa heimili sín vegna seinagangs ráðherrans við að framlengja frestun á nauðungarsölum?

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum