Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Óháð ráðgjöf fyrir heimilin í efnahagskreppu

Óháð ráðgjöf fyrir heimilin í efnahagskreppu

Hagsmunasamtök heimilanna hafa hlotið styrk frá félags-og barnamálaráðherra til að aðstoða heimili í vanda vegna Covid-19.

Hagsmunasamtökin hafa starfað í 12 ár og hafa allan þann tíma veitt heimilum óháða ráðgjöf um stöðu þeirra á fjármálamarkaði, þá einu sem í boði er hér á landi. Hjá samtökunum hefur safnast upp gríðarleg þekking á málefnum neytenda á fjármálamarkaði og réttindum þeirra sem eru því miður ekki alltaf virt af fjármálafyrirtækjum þar sem neytendur standa oft höllum fæti. 

Hagsmunasamtökin hafa ítrekað leitað eftir stuðningi opinberra aðila til að veita neytendum óháða ráðgjöf í þeim frumskógi sem lánamarkaðir, lánakjör og lánsform eru á Íslandi. Samtökin telja það tímaskekkju að á 21. öldinni séu lántakendur háðir lánveitendum um ráðgjöf í þessum stærstu fjárfestingum hvers heimilis enda fara hagsmunir þessara aðila ekki alltaf saman.

Sem sjálfboðaliðasamtök rekin að mestu fyrir valkvæð félagsgjöld hafa Hagsmunasamtökin orðið að sníða sér stakk eftir vexti og ekki getað auglýst þjónustu sína sem skildi. 

Núna eru breyttir tímar því í janúar veitti félags-og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, samtökunum myndarlegan styrk sem gerir þeim kleift að auka við ráðgjöf sína og þjónustu.

Á þessum tímum heimsfaraldurs þar sem margir standa frammi fyrir tekjufalli og greiðsluerfiðleikum vilja samtökin leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem þurfa á aðstoð að halda, enda hafa samtökin allt frá því faraldurinn hófst sett málefni tengd afleiðingum hans á oddinn. 

Fram kemur í samningi um styrkinn að verkefnið sé tvíþætt. Í fyrsta lagi snýr það að hagsmunagæslu lántakenda (heimilanna) í efnahagskreppu og í öðru lagi að átaki í lögfræðilegri ráðgjöf og stuðningi við félagsmenn í greiðsluerfiðleikum.

Við hvetjum alla þá sem óska eftir ráðleggingum eða aðstoð við að átta sig á stöðu sinna mála til að hafa samband við okkur í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sem allra fyrst og láta nafn og símanúmer fylgja með. Við munum hafa samband við fyrsta tækifæri.

Hagsmunasamtök heimilanna




© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum