Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Hindrar Hagstofan lækkun vísitölu?

Hindrar Hagstofan lækkun vísitölu?

Fréttatilkynning

Hagstofan birti í gær vísitölu neysluverðs fyrir þennan mánuð. Í stuttu máli er ekkert mark takandi á vísitölu apríl mánaðar og í henni kristallast að verðtryggð lán heimilanna geta ekki lækkað, eða réttara sagt, þau fá ekki að lækka.

Lesa áfram...
Hjálpið okkur að hjálpa ykkur!

Hjálpið okkur að hjálpa ykkur!

Bréf frá formanni til félagsmanna, gesta neytendatorgs og umræðuhóps Hagsmunasamtaka heimilanna. 

Kæru félagsmenn og konur,

Hafi einhver efast um þörfina fyrir Hagsmunasamtök heimilanna þarf sá hinn sami ekki lengur að velkjast í neinum vafa

Lesa áfram...
Dómsmálaráðherra vill "síma-nauðungarsölur"

Dómsmálaráðherra vill "síma-nauðungarsölur"

Fréttatilkynning

Um þessar mundir sjá tugþúsundir heimila fram á algjöra óvissu og mjög erfiða fjárhagslega stöðu á komandi mánuðum, ekki aðeins hér á landi heldur um allan heim. Þess vegna hafa stjórnvöld í mörgum löndum, þar á meðal Bandaríkjunum, fyrirskipað algjöra stöðvun á öllum nauðungarsölum þar til þetta ástand verður yfirstaðið.

Lesa áfram...
Fá heimilin að njóta vafans?

Fá heimilin að njóta vafans?

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna vill að þak verði sett á vísitölu neysluverðs við útreikning á verðtryggðum lánum, nú þegar djúp efnahagslægð er í aðsigi. Umfang og áhrif hennar eru óljós.

Íslensk heimili þurfa því fullvissu um að greiðslubyrði verðtryggðra lána haldist í hendur við þau verðbólgumarkmið

Lesa áfram...
Staða heimilanna á óvissutímum

Staða heimilanna á óvissutímum

Skilaboð til heimilanna

Ástandið er fordæmalaust. Það hefur verið kvartað yfir ofnotkun á þessu orði “fordæmalaust” en það er því miður ekkert annað orð sem nær betur yfir það ástand sem blasir við öllum heiminum í dag.

Margir eru hræddir, ekki aðeins við Covid-19 heldur líka áhrif veirunnar á efnahaginn

Lesa áfram...
Áskorun til Ríkisstjórnar Íslands og Alþingismanna

Áskorun til Ríkisstjórnar Íslands og Alþingismanna

Heimilin eru grunnstoðir samfélagsins!

Staðan sem hefur skapast vegna Covid-19 veirunnar er gríðarlega erfið, en Hagsmunasamtök heimilanna fagna því að ríkisstjórnin hafi sýnt forsjálni og þegar kynnt aðgerðir til að milda áhrif hennar á efnahagslífið.

Lesa áfram...
Viðspyrnu er þörf - fyrir hagkerfið og heimilin

Viðspyrnu er þörf - fyrir hagkerfið og heimilin

Áskorun til ríkisstjórnar Íslands:  Viðspyrnu er þörf - fyrir hagkerfið og heimilin

Í gær kynnti ríkisstjórn Íslands “Viðspyrnu fyrir íslenskt efnahagslíf” vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 veirunnar. Það dylst engum að ef fram heldur sem horfir mun efnahagslíf þjóðarinnar og jafnvel heimsins alls verða fyrir miklu áfalli, þannig að viðspyrnu er þörf og nauðsynlegt að undirbúa hana eins vel og hægt er.

Lesa áfram...
Niðurstöður aðalfundar 2020

Niðurstöður aðalfundar 2020

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2020 var haldinn 25. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Bjarnason varaformaður
  • Sigríður Örlygsdóttir gjaldkeri
  • Hólmsteinn Brekkan ritari
Lesa áfram...
Ársskýrsla HH 2019-2020

Ársskýrsla HH 2019-2020

Samkvæmt venju eru fundargögn birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundar í formi ársskýrslu sem inniheldur jafnframt helstu upplýsingar um fundarefni samkvæmt boðaðri dagskrá.

Félagsmenn eru minntir á aðalfundinn kl. 20:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020, í húsnæði Hjálpræðishersins að Álfabakka 12 í Mjóddinni (gengið inn að sunnanverðu).

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum