Starfsemi
Hagsmunasamtök heimilanna vinna að bættum lánakjörum og aukinni neytendavernd fyrir íslensk heimili. Samtökin taka virkan þátt í opinberri umræðu, senda árlega fjölda umsagna um lagafrumvörp og reka óháða ráðgjafarþjónustu fyrir félagsmenn.
Frá stofnun hefur afnám verðtryggingar á neytendalánum verið eitt helsta baráttumál samtakanna, ásamt því að réttur fólks til heimilis sé virtur.
Ráðgjafarþjónusta
Félagsmenn eiga kost á óháðri ráðgjöf um lánaviðskipti sín. Nánar má lesa um þjónustuna á síðunni Ráðgjöf.
Hafðu samband
Sendu okkur tölvupóst á heimilin@heimilin.is og við svörum samdægurs eða næsta virka dag. Símatími er mánudaga og þriðjudaga kl. 10–13 í síma (+354) 546 1501.