Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Kvörtun yfir gjaldtöku Creditinfo fyrir aðgang að lánshæfismati

Kvörtun yfir gjaldtöku Creditinfo fyrir aðgang að lánshæfismati

Hagsmunasamtök heimilanna hafa beint kvörtun til Persónuverndar yfir gjaldtöku fyrirtækisins Creditinfo Lánstrausts hf. fyrir aðgang einstaklinga að upplýsingum um sitt eigið lánshæfismat.

Creditinfo hefur löngum boðið einstaklingum aðgang að upplýsingum um lánshæfismat sitt gegn gjaldi en gjaldfrjálst samþykki viðkomandi einstaklingur að deila svokölluðum viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu til notkunar við gerð lánshæfismats. Nýlega gerði fyrirtækið þá breytingu á þessu að nú er í öllum tilvikum krafist gjalds fyrir aðgang einstaklings að sínu eigin lánshæfismati. Fullt gjald er nú 2.900 krónur en lægra eða 1.990 krónur ef viðkomandi samþykkir að deila viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu, sem annars væri óheimilt að safna og nýta við vinnsluna.

Hagsmunasamtök heimilanna telja gjaldtökuna vera ólögmæta og girða með ólögmætum hætti fyrir að einstaklingar geti greiðlega nýtt sér rétt sinn til aðgangs að persónuupplýsingum sínum, andmæla, leiðréttingar, takmörkunar vinnslu og endurskoðunar á niðurstöðum lánshæfismats. Með því að hnika einstaklingum til að samþykkja aukna vinnslu persónuupplýsinga gegn lægra gjaldi fyrir aðgang að niðurstöðum lánshæfismats sé jafnframt grafið undan vernd persónuupplýsinga með ólögmætum hætti. Samtökin hafa því beint kvörtun yfir þessari gjaldtöku til Persónuverndar.

Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna er það óforsvaranlegt að fyrirtæki í einokunarstöðu á vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust landsmanna sem gerir sér mat úr þeim upplýsingum, skuli í ofanálag krefja einstaklinga um gjald fyrir aðgang að þeirra eigin persónuupplýsingum og brjóta þannig gegn lögbundnum réttindum þeirra. Neytendur hafa aldrei verið beðnir um leyfi fyrir því að fjárhagsupplýsingar þeirra séu gerðar að söluvöru og einhvers staðar verður að draga línu í sandinn. Lögbundin réttindi neytenda til aðgangs að þeirra eigin upplýsingum má aldrei gera að féþúfu!

Heimilin eiga ekki að vera fóður fyrir fjárhagsupplýsingastofu!


© Hannað af Filmís 

 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum