Um leið og Hagsmunasamtök heimilanna óska landsmönnum gleðilegs árs og í tilefni þess árangurs sem lögbrjótar hafa náð við að velta afleiðingum gerða sinna yfir á heimili og fyrirtæki landsmanna. Birtum við hér smá grín áramótakveðju frá Nábítum, böðlum og illum öndum ehf.
Erfitt ár er nú að baki. Því miður er útlitið ekki bjart fyrir þorra íslenskra heimila á komandi ári. Hagsmunasamtök heimilanna hafa sterklega varað við þeirri leið eignaupptöku sem ríkisstjórn ásamt fjármálastofnunum eru að feta. Því miður hefur ekki verið hlustað á varnaðarorð samtakanna hvað þá tillögur um betri og sanngjarnari leið. Menn og fjölmiðlar sem hafa oft verið taldir málsmetandi hafa gengið svo langt að uppnefna samtökin og gera þeim upp ásetning sem enginn fótur er fyrir. Málefnalegri umræðu var gefið langt nef satt best að segja, ráðist var á æru einstaklinga og frasar og fyrirsagnir komu í stað alvöru fréttaskýringa.
Þess má geta að Skjár 1 hafnaði birtingu ofangreindrar auglýsingar.
Í lok árs gengu þó í gegn breytingar á gjaldþrotalögum sem verða að teljast skref í átt réttarbóta. Gjaldþrot er ekki lengur ævilöng fjárhagsleg útlegð heldur tveggja ára ferli. Ekki var tekið tillit til allra athugasemda Hagsmunasamtaka heimilanna. Hér eru nýju lögin og hér er umsögn HH.
https://www.youtube.com/watch?v=A7g0F_lTJqU&t=17s