Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Styrkur til hagsmunagæslu lántakenda

Styrkur til hagsmunagæslu lántakenda

Hagsmunasamtök heimilanna hafa tekið á móti rekstrarstyrk frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu fyrir hagsmunagæslu lántakenda. Hagsmunir lántakenda eru leiðarstef í starfseminni með kröfu um betri lánskjör og að réttur allra til heimilis sé virtur sem grundvallarmannréttindi. Á liðnu ári tóku samtökin á móti og afgreiddu 192 fyrirspurnir félagsmanna og sendu frá sér 31 umsögn um löggjafarmál. Samtökin voru stofnuð í efnahagshruninu og starfsemin byggir að stóru leyti á reynslu félagsmanna frá þeim tíma en megintilgangur hennar er að standa vörð um réttindi og hagsmuni félagsmanna og vinna að forvörnum gagnvart alvarlegum greiðsluvanda.

Hagsmunasamtök heimilanna sóttu um styrkinn samkvæmt auglýsingu frá 29. október 2025 um úthlutun styrkja til félagasamtaka til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins. Félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, bauð styrkþegum á athöfn til að veita styrkjum viðtöku, þriðjudaginn 17. mars á Hótel Hilton Nordica. Guðmundur Ásgeirsson formaður stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna tók á móti styrknum fyrir hönd samtakanna og var fulltrúi þeirra á meðal annarra styrkþega og frumkvöðla af vettvangi félagasamtaka. Rekstrarstyrkurinn frá ráðuneytinu er að fjárhæð 5.000.000 kr. af safnliðum fjárlaga 2026.

Eitt helsta viðfangsefni Hagsmunasamtaka heimilanna er að halda á lofti kröfunni um sanngjarnari lánskjör fyrir heimilin og öflugri neytendavernd í lánaviðskiptum. Sérhæfing samtakanna er á sviði neytendaverndar á fjármálamarkaði, því stjórnarmenn hafa frá stofnun fylgst vel með framþróun á þessu sviði. Ekki síst með hliðsjón af reglum og dómaframkvæmd á sviði Evrópuréttar. Hagsmunagæsla og réttindavernd lántakenda er liður í því að byggja upp sanngjarnari umgjörð um húsnæðiskaup almennings, enda eru allt of margir jaðarsettir á húsnæðismarkaði gagnvart háum húsnæðiskostnaði og ófyrirsjáanlegri, síbreytilegri og íþyngjandi greiðslubyrði húsnæðislána.

(Sjá frétt vef stjórnarráðsins: Styrkir veittir til frjálsra félagasamtaka til verkefna á sviði félagsmála)

 



Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.