Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna hefur frá upphafi mótmælt harðlega þeim afturvirku vaxtaútreikningum sem haldið hefur verið fram að Hæstiréttur hafi dæmt (dómur frá 16. sept. 2010 471/2010). Hið rétta er að Hæstiréttur heimilaði aldrei nýja vaxtaútreikninga aftur í tímann heldur var gerður samningur á milli Lýsingar og umrædds lántaka um slíka útreikninga en þeim var að sjálfsögðu frjálst að gera það.
Stjórnvöld, sem hafa i lengstu lög reynt að gæta hagsmuna bankanna og bílalánafyrirtækjanna á kostnað heimilanna, túlkuðu þennan samning sem svo að hann væri dómur Hæstaréttar. Eftir er að reyna á að lögin sem endurútreikningar lánanna byggja á, standist skoðun dómstóla. Þau kveða á um afturvirka vaxtaútreikninga sem lögfróðir menn telja í andstöðu við margvísleg önnur ákvæði laga og stjórnarskrár, svo ekki sé minnst á neytendarétt. Hér er mikið hneyksli í uppsiglingu og ríkið hefur ef að líkum lætur skapað sér stórkostlega skaðabótaskuld.
Nú eru fjármálafyrirtæki að senda viðskiptavinum sínum endurreikning gengistryggðra lána. Ef félagsmenn eru ósáttir eða óvissir um niðurstöðurnar og vilja fá aðstoð við að láta skoða þær frekar eru 3 megin leiðir i stöðunni:
- fara til síns fjármálafyrirtækis og fara fram á útskýringar endurreiknings
- biðja umboðsmann skuldara að meta endurreikninginn
- leita til óháðra ráðgjafa á því sviði, t.d. spara.is eða lögmanna
Eins og kemur fram að ofan ríkir lagaleg óvissa um afturvirka vaxtaútreikninga. Bílalánafyrirtækin hafa einnig verið án lagalegra heimilda að vörslusvipta bifreiðaeigendur sem eru að fara í greiðsluaðlögun. Þetta er gert með riftun svonefndra leigusamninga sem dómstólar hafa áður skorið úr um að eru í reynd dulbúnir kauplánasamningar. Það eru langsóttir gjörningar sem umboðsmaður skuldara hefur gert alvarlegar athugasemdir við.