Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Háreysti heimilanna á Austurvelli

Nokkur hundurð manns safnaðist saman að frumkvæði Hagsmunasamtaka heimilanna á Austurvelli og hafði hátt á meðan eldhúsdagsumræður fóru fram á Alþingi í kvöld. Fjölbreytt safn hávaðaseggja, ungra jafnt sem aldinna, kom saman og tjáði hug sinn í garð stjórnvalda og æpandi aðgerðarleysis þeirra.

Farið var með ýmsu móti í framleiðslu hávaðans og spannaði "framleiðslutæknin" allt frá pottum og trommum að ýlum, gaslúðrum og flautum. Útkoman var eftir því háreyst og góð.

 

Á sama tíma og allt kapp virðist lagt á að ljúka þessu vorþingi, blasa verkefnin við hvert öðru brýnna. Skuldir fólks og fyrirtækja eru enn að taka stökkbreytingum, gríðarleg eignatilfærsla á sér enn stað í skjóli verðtryggingar og óréttmætra endurútreikninga á gengistryggðum lánum. Og fólk er enn að flýja af landi brott kjaraskerðingar og atvinnuleysi.

Þversögnin sem birtist þannig í störfum þingsins annars vegar og kjörum almennings hins vegar er að mati Hagsmunasamtaka heimilanna til marks um sambandsleysi stjórnvalda við þjóðina, eins og fram kemur í viðtali við Andreu J. Ólafsdóttur, formann samtakanna, í tíufréttum Ríkissjónvarpsins. Almenningur verði því að láta í sér heyra og rjúfa þessa sjálfskipuðu einangrun stjórnarherranna.

Sjá viðtalið við Andreu.

 

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.