Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti ályktun um fjármál heimilanna.
Í henni segir meðal annars:
- Sjálfstæðisflokkurinn vill endurskoða lög nr. 151/2010 sem ríkisstjórnin setti í kjölfar ólöglegu gengislánanna. Lagasetningin hefur aukið á óvissu, kallað á málaferli og skaðað stöðu lánþega. …
- Sjálfstæðisflokkurinn vill færa niður höfuðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána. Þessi aðgerð og önnur endurskipulagning skulda heimilanna er forsenda fyrir auknum hagvexti og framtíðaruppbyggingu íslensks þjóðfélags. …
- Landsfundur Sjálfstæðisflokksins krefst þess að skipan húsnæðis- og neytendalána verði með sama hætti og annars staðar á Norðurlöndunum, Bretlandi og Þýskalandi. Tryggja verður virka samkeppni á lánamarkaði vegna húsnæðiskaupa, sem getur leitt til að vextir og gjaldtaka lánastofnana verði með svipuðum hætti og í nágrannalöndum okkar. Verðtrygging neytendalána á ekki að vera valkostur í nútímasamfélagi.
Afstaða landsfundarmanna er í fullu samræmi við niðurstöður könnunar sem HH létu nýlega framkvæma. Í könnuninni kom meðal annars fram að 79% af þeim sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu Alþingiskosningum eru hlynnt afnámi verðtryggingar og 83% af kjósendum flokksins eru fylgjandi almennri niðurfærslu lána.
Þingmenn flokksins ættu því ekki að þurfa að velkjast í vafa um hver vilji Sjálfstæðismanna er í þessum efnum. Nú verður forvitnilegt að sjá hvort forystan leiðir fram vilja fundarins eða ekki sérstaklega í ljósi nýlegra ummæla formannsins um að "verðtryggingin sé ekki vandamálið, heldur verðbólgan".
Bæði Framsóknarflokkurinn og Hreyfingin taka undir kröfur HH og ber að geta þess að báðir stjórnarflokkar hafa ályktað í þá veru að lán beri að leiðrétta og verðtyggingu að afnema, en svo virðist sem forystan sé treg til framkvæmda.
Hagsmunasamtök heimilanna vinna nú út frá þverpólitískri nálgun sinni að því að fá þingmenn til þess að leggja fram þingmál um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem ríkisstjórnin hefur ekki tekið nein skref í áttina að því að leiðrétta lán með almennum hætti og afnema verðtrygginguna.