Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Viljayfirlýsing HH í skoðun

Í morgun átti formaður HH fund með forsætisráðherra um þá viljayfirlýsingu sem samtökin sendu ráðherra í gærkvöldi. Samtökin setja það sem skilyrði fyrir samstarfi að rætt verði saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu um nálgun á viðfangsefnið með viljayfirlýsingu. Viljayfirlýsingin er nú í skoðun. Báðum aðilum þykir ákaflega mikilvægt að komast af stað með verkefnið hið fyrsta, en HH vilja tryggja rétta nálgun og kortleggja verkefnin áður en farið er af stað.

Þann 1. október 2011 afhenti formaður Hagsmunasamtaka heimilanna forsætisráðherra undirskriftir 33.525 einstaklinga sem krefjast, í nafni almannahagsmuna, almennra og réttlátra leiðréttinga á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnáms verðtryggingar. Hafi stjórnvöldekki orðið við kröfunni fyrir 1. janúar 2012 jafngildir undirskriftin kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu um kröfugerðina.

Undirskriftasöfnunin stendur til áramóta á vefsíðunni undirskrift.heimilin.is og hafa fjölmargar undirskriftir bæst við listann frá afhendingu.
Samkvæmt könnun sem samtökin létu gera árið 2009 styðja 80% landsmanna kröfu samtakanna um afnám verðtryggingar.

Ofangreindar aðgerðir eru nauðsynlegur hluti af brýnni efnahagslegri endurreisn samfélagsins og þurfa aðgerast fyrir tilstuðlan íhlutandi frumkvæðis af hálfu stjórnvalda.Fjármálakerfið á að vera sniðið að þörfum samfélagsins, en ekki öfugt.

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.