Úrskurður Evrópudómstólsins frá því í síðustu viku í slóvensku máli kann að hafa fordæmisgildi fyrir uppgjör gengislána hér á landi, neytendum í hag. Evróputilskipun sú sem dómurinn byggir á, þ.e. 93/13/EEB um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum, hefur verið innleidd í íslensk lög.

Í niðurstöðu sinni vekur Evrópudómstóllinn athygli á því að markmið evróputilskipunarinnar sé að fella út ósanngjarna skilmála, en halda samningnum gildum að öðru leyti ef mögulegt er. Varðandi það hvort samningur geti í slóvenska málinu staðið án hinna ósanngjörnu skilmála kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að samningnum beri að standa að öðru leyti, ef það er neytandanum í hag.
Samkvæmt niðurstöðu eiga því samningsvextir að gilda út lánstímann, ólíkt þeirri niðurstöðu sem Hæstiréttur Íslands komst að í dómi 600/2011 frá 15. febrúar síðast liðnum, en þar segir að samningsvextir skuli gilda fram að þeim tíma sem gengislán hér á landi voru dæmd ólögmæt, en lægstu óverðtryggðu vextir Seðlabanka Íslands eftir það.
Aðalsteinn Sigurðsson, lögfræðingur sagði í viðtali í sjónvarpsfréttum RÚV um möguleg áhrif Evrópudómsins varðandi gengistryggð lán hérlendis:
,,Ef Hæstiréttur ætlar að ógilda samningsvextina, þá er spurning hvort það megi nokkuð koma í staðinn. Allavega ekki eitthvað sem er óhagstæðara neytandanum heldur en það sem fyrir var”.