Nýlega tók stjórn Íbúðalánasjóðs þá ákvörðun að stytta þann greiðslufrest sem veittur er frá gjalddaga afborgana af útlánum sjóðsins, þar til greiðsla fellur í eindaga. Hagsmunasamtökum heimilanna hafa í kjölfarið borist fjöldi fyrirspurna frá almenningi um þessa breytingu, meðal annars varðandi almennt réttmæti hennar, og er eftirfarandi ályktun stjórnar samtakanna.
Forkönnun á réttarstöðu neytenda hefur ekki leitt í ljós að neinar formlegar reglur eða sérstök lagaákvæði gildi um þann greiðslufrest sem venja er hér á landi að veita frá hverjum og einum gjalddaga skuldar, þar til greiðslukrafa vegna hans telst fallin í eindaga. Samkvæmt vaxtalögum skal þó almennt reikna dráttarvexti frá og með gjalddaga, og er þeim því jafnan venju samkvæmt bætt við fjárhæð greiðslukröfu hafi hún ekki verið innt af hendi þegar hún fellur í eindaga.
Almennt virðist ekki vera kveðið sérstaklega á um eindagafrest í ákvæðum lánssamninga og er ekki vitað til þess að reynt hafi á óskráða lánaskilmála sem þessa fyrir dómstólum. Að óbreyttu réttarástandi virðist þannig fátt því til fyrirstöðu að lánveitendur geti breytt eindagafresti sem skuldara er veittur þrátt fyrir venju sem kunni að hafa skapast í samningssambandinu. Í flestum tilvikum eru ekki stórkostlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi, en engu að síður er vel hugsanlegt að í sumum tilvikum gæti slík breyting haft í för með sér umtalsverð óþægindi fyrir greiðendur.
Af þessu tilefni vilja Hagsmunasamtök heimilanna beina þeirri aðvörun til félagsmanna sem og annarra, að vera viðbúin því að lánadrottnar kunni ef til vill einhverntíma að breyta eindagafresti og hugsanlega stytta hann án sérstaks fyrirvara. Samtökin hvetja lánveitendur góðfúslega til þess að sýna viðskiptavinum þá sjálfsögðu tillitssemi að forðast fyrirvaralitlar breytingar þeim í óhag á venjum sem kunna að hafa fest sig í sessi um eindagafresti, auk þess að gæta ávallt meðalhófs við slíkar breytingar teljist þær óhjákvæmilegar. Loks er neytendum bent á að upplýsinga um hvaða eindagafrestir séu í gildi á hverjum tíma er best að leita hjá viðkomandi lánástofnun eða banka.
- stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna