Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Fátækragildra verðtryggðra lána

Fátækragildra verðtryggðra lána

Í síðasta tölublaði Stundarinnar (September 2022) var fjallað um áhrif vaxtahækkana á lántakendur og viðhorf þeirra og sérfræðinga til stöðunnar á húsnæðismarkaði. Í umfjöllun Stundarinnar koma fram sjónarmið sem að jafnaði eru ekki ofarlega í umræðu um húsnæðismál eða verðtryggð lán. Úttekt Stundarinnar gefur innsýn í fjárhagslegt og félagslegt misrétti sem lítið sem ekkert hefur verið fjallað um hingað til, en Hagsmunasamtök heimilanna þekkja mætavel.

Aldrei aftur verðtryggt lán

Það kemur þeim hagfræðingum sem Stundin ræddi við ekki á óvart að lántakendur haldi tryggð við óverðtryggð lán þrátt fyrir miklar hækkanir vaxta. Heilt yfir er það mat sérfræðinganna sem Stundin ráðfærir sig við að fólk sé að halda í óverðtryggð lán í lengstu lög og því hafi færri fært sig yfir í verðtryggð lán en kannski mátti búast við. Staðan gæti þó breyst og lántakendur gætu í auknum mæli þurft að færa sig yfir í verðtryggð lán, til að létta greiðslubyrðina (tímabundið).

Skýr samhljómur virtist vera meðal viðmælenda, bæði sérfræðinga og leikmanna um að verðtryggð lán séu lakasti kosturinn í íbúðarkaupum.

Lántakendur liggja ekki á sinni skoðun. Einn viðmælenda Stundarinnar er starfsmaður Hagsmunasamtaka heimilanna og ráðgjafi hjá samtökunum í réttindagæslu lántakenda. Hún segist aldrei ætla að taka verðtryggt lán aftur, þrátt fyrir að hækkanir á óverðtryggðum vöxtum séu nú íþyngjandi. Reynslan af verðtryggðum skuldbindingum var slæm. Annar viðmælandi segist fastur í verðtryggðum lánum og ekki sáttur við sína stöðu en hafi ekki annan valkost. Fleiri viðmælendur lýsa sambærilegri afstöðu til verðtryggðra lána og það ætti ekki að koma á óvart að fólk er meðvitað um ókosti verðtryggingar í húsnæðiskaupum. Fjölmargir hafa þó einfaldlega ekki val. Ofan á miklar hækkanir vaxta er hátt húsnæðisverð mörgum fjötur um fót og fólk kemst einfaldlega ekki inn á húsnæðismarkað, þrátt fyrir að vera útivinnandi.

Góður kostur fyrir tekjulága

Þó að gagnrýninn samhljómur sé meðal viðmælenda Stundarinnar í garð verðtryggðra lána, kemur sjónarmið við sögu í greininni sem lengi hefur ríkt í garð verðtryggingar á fasteignalánum, hjá einum viðmælenda. Það er sú afstaða að verðtryggð lán séu lausn eða jafnvel góður kostur fyrir tekjulága. Það er að segja að verstu lánskjörin í íbúðarkaupum séu ásættanleg fyrir þá einstaklinga sem minnst fjárráð hafa eða standa einir að rekstri heimilis.

Þessi réttlæting hlýtur að vekja upp spurningar. Því eignarrétturinn er einfaldlega bundinn í stjórnarskrá og sá réttur er allra, ekki eingöngu þeirra sem fjársterkari eru. Jöfn staða og jöfn tækifæri fólks er grundvallaratriði í hugsjóninni um mannréttindi og gildir einnig um réttinn til eigna, en misrétti er samt víða að finna á húsnæðismarkaði.

Þessi réttlæting á mismunun í lánskjörum hlýtur líka að vekja upp spurningar með tilliti til mikils hagnaðar bankanna. Í hárri verðbólgu hækka þeir allir sem einn skilyrðislaust vexti, í kjölfar stýrivaxtahækkana og raka inn gríðarlegum hagnaði. Það þarf ekki að minna á að verðbætur af verðtryggðum lánum streyma inn í kistur þeirra, þegar verðbólgustig er hátt. 

Samtímis veikist fjárhagsstaða fjölmargra á húsnæðismarkaði, sem neyðast til að sætta sig við skilmála fasteignalána sem eru víða bannaðir í lánum til neytenda (venjulegs fólks).

Misskipting auðs og verðbólgan

Þeir ríku hafa orðið ríkari í heimsfaraldri og nú enn frekar í hárri verðbólgu. Auðsöfnun fjármálakerfisins er opinberuð með stórkostlegum hagnaði og umfangsmikilli tilfærslu á fjármunum, frá heimilum til bankanna. Það er því ekki furða að formenn VR og Hagsmunasamtaka heimilanna hafa kallað bankana blóðsugur á samfélagið. Það er ekki langt síðan viðhorf formannanna var frétt á forsíðu Stundarinnar.

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son og Ásthild­ur Lóa Þórs­dótt­ir segja gríð­ar­leg­an hagn­að bank­anna tek­inn úr vasa al­menn­ings og ís­lenskt fjár­mála­kerfi sé risa­stór baggi á sam­fé­lag­inu. Skrúfa þurfi fyr­ir sjálf­töku bank­anna úr vös­um lands­manna (Stundin 6. ágúst 2022).

Hagsmunasamtök heimilanna

 

 

Greinar úr umfjöllun Stundarinnar um húsnæðismál má finna á vefmiðli STUNDARINNAR:

Það er bara fátæka fólkið sem tekur verðtryggðu lánin og Ég held bara áfram að vera föst í verðtryggðum lánum.

 

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.