Fundarboð aðalfundar
Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, fimmtudagskvöldið 23. febrúar 2023 kl. 20:00, í hátíðarsal Hjálpræðishersins á Íslandi að Suðurlandsbraut 72, 108 Reykjavík.
Dagskrá:
- Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
- Skýrsla stjórnar: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður
- Reikningar samtakanna: Sigríður Örlygsdóttir, gjaldkeri
- Tillaga stjórnar um ákvörðun félagsgjalda
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Kosning stjórnarmanna
- Kosning varamanna
- Kosning skoðunarmanna
- Önnur mál
Eftirfarandi tillaga um breytingu á samþykktum verður lögð fyrir fundinn:
4. mgr. 14. gr. orðast svo:
“Verði samtökunum slitið, skal eignum þeirra ráðstafað til almannaheillafélags eða -félaga sem starfa að neytendamálum eða til stuðnings við fólk í fjárhagserfiðleikum. Með almannaheillafélögum er átt við lögaðila sem uppfylla skilyrði skráningar á almannaheillaskrá samkvæmt lögum um tekjuskatt eða almannaheillafélagaskrá samkvæmt lögum um félög til almannaheilla.”
Núverandi ákvæði er svohljóðandi:
“Verði samtökin lögð niður, skal eignum þeirra ráðstafað til líknarstarfa.”
Samkvæmt ábendingu frá Skattinum er þetta of almennt orðað og er því nauðsynlegt að kveða með nákvæmari hætti á um ráðstöfun eigna við slit, til að uppfylla skilyrði skráningar á Almannaheillaskrá.
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er 7 dögum fyrir aðalfund eða til 16. febrúar kl. 20:00.
Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna:
Bestu kveðjur,
Hagsmunasamtök heimilanna