Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Stefnuskrá stjórnar 2023-2024

Stefnuskrá stjórnar 2023-2024

Samkvæmt samþykktum Hagsmunasamtaka heimilanna skal stjórn gera sér stefnuskrá ár hvert. Síðastliðin ár hefur verið horft til stefnuskrár í starfseminni sem vísar með almennum hætti til helstu baráttumála samtakanna. Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna hefur nú samþykkt uppfærða stefnuskrá og vill kynna hana fyrir félagsmönnum og almenningi: 

Stefnuskrá stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna 2023-2024

  • Að réttur allra til heimilis sé virtur sem grundvallarmannréttindi, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins.
  • Að verðtrygging lána til neytenda verði afnumin enda hækkar hún lán, leigu, vaxtastig, vöruverð og framfærslukostnað allra heimila.
  • Að tryggt verði að heimilin geti treyst því að forsendur greiðslumats standist þannig að greiðslubyrði húsnæðislána hækki ekki umfram greiðslugetu þeirra.
  • Að neytendum verði gert kleift að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán án þess að greiðslumat eða aðrar hindranir standi í vegi fyrir því.
  • Að fundið verði út hvað kostar að lifa hófsömu mannsæmandi lífi og framfærsla verði tryggð til samræmis við það.
  • Að gerð verði Rannsóknarskýrsla heimilanna um þær aðgerðir sem ráðist var í eftir bankaránið 2008 og afleiðingar þeirra fyrir heimilin.

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.