Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, fimmtudagskvöldið 22. febrúar 2024 kl. 20:00, í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42, í Reykjavík. Skrifstofa samtakanna er nú í húsi ÖBÍ, ásamt ýmsum félagasamtökum sem starfa að réttindamálum almennings. Aðalfundur verður haldinn í miðrými hússins og gengið er inn um aðaldyr við vesturenda byggingarinnar.
Dagskrá:
- Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
- Skýrsla stjórnar: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður
- Reikningar samtakanna: Sigríður Örlygsdóttir, gjaldkeri
- Tillaga stjórnar um ákvörðun félagsgjalda
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Kosning stjórnarmanna
- Kosning varamanna
- Kosning skoðunarmanna
- Önnur mál
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er 7 dögum fyrir aðalfund eða til 15. febrúar kl. 20:00. Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna:
Einnig er óskað eftir tilnefningum skoðunarmanna og sjálfboðaliðum í talningu atkvæða á fundinum. Fundargögn verða birt á heimasíðu samtakanna www.heimilin.is í aðdraganda aðalfundarins.
Bestu kveðjur,
Hagsmunasamtök heimilanna