Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Áskorun til peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands

Eftirfarandi áskorun hefur verið send peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands: 

Fyrir hönd VR, Verkalýðsfélags Akraness og Hagsmunasamtaka heimilanna, vilja undirrituð biðla til peningastefnunefndar seðlabankans og um leið seðlabankastjóra, að hækka ekki álögur á heimilin þrátt fyrir aukna verðbólgu.

Ekki auka álögur á heimilin í vaxandi verðbólgu

Vaxtahækkanir geta í einhverjum tilfellum verið réttlætanlegar til að slá á verðbólgu en það á ekki við þegar verðbólgan stafar aðallega af utanaðkomandi aðstæðum sem ekki verða raktar hér, auk skorts á húsnæði sem valdið hefur mikilli hækkun húsnæðisverðs.

Frysting á verðtryggingu lána og húsaleigu

Frumvarp til laga á Alþingi

Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna hefur mælt fyrir frumvarpi um tímabundna frystingu á verðtryggingu lána og húsaleigu vegna stöðunnar í efnahagsmálum. Með frumvarpi þessu er lagt til að frysta í ár, hækkanir á verðtryggðum skuldbindingum heimilanna vegna húsnæðis, sem hafa farið ört hækkandi að undanförnu vegna verðbólgu sem má að stóru leyti rekja til áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Frumvarpið var lagt fram 1. desember og mælt var fyrir því 18. janúar - 80/152 frumvarp til laga. 

Hótanir um hefnd

Hér á landi eru þrír bank­ar sem hafa sam­an­lagt hagn­ast um a.m.k. 960 millj­arða frá efna­hags­hrun­inu 2008. Til að setja þessa upp­hæð í sam­hengi þá sam­svar­ar hún því að hvert ein­asta manns­barn í 360.000 manna sam­fé­lagi hafi lagt 2,5 millj­ón­ir til HAGNAÐAR bank­anna.

Of mikil völd

Það er staðreynd að bank­arn­ir stunda í raun sjálf­töku á Íslandi. Þeir hafa tögl­in og hagld­irn­ar gagn­vart öll­um sín­um viðskipta­vin­um og á milli þeirra er eng­in sam­keppni held­ur fákeppni þannig að ef t.d. einn bank­inn hækk­ar vexti, þá gera hinir það líka.

Vaxtahækkanir eru ekkert lögmál og engin þörf á þeim

Hagsmunasamtök heimilanna senda áskorun til  ríkisstjórnarinnar og lánveitenda um að halda aftur af vaxtahækkunum.

Samtökin vekja athygli á hvernig heimilin eru nú sem oftar, gjörsamlega berskjölduð fyrir vaxtaákvörðunum lánastofnana.

Eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki í ársbyrjun hafa meginvextir Seðlabanka Íslands verið hækkaðir þrisvar, um 0,25 prósentustig í hvert skipti. Flestir lánveitendur hafa fylgt þeim hækkunum dyggilega eftir með sambærilegum hækkunum á vöxtum húsnæðislána og þannig lagt auknar fjárhagslegar byrðar á stærstan hluta íslenskra heimila.

Formenn HH og VR funduðu með forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra

Þann 7. júní sl. áttu formenn Hagsmunasamtaka heimilanna og VR fund með forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.

Þau Ásthildur Lóa og Ragnar Þór greindu ráðherrunum frá áhyggjum sínum af stöðu heimilanna í hækkandi verðbólgu vegna afleiðinga heimsfaraldursins og fóru fram á að ráðherranir myndu beita þeim aðgerðum sem þeir ráða yfir til að tryggja að þær afleiðingar muni ekki skella af fullum þunga á heimilum landsins.

Stjórnvöld hafa brugðist réttmætum væntingum heimilanna

Áskorun til ríkisstjórnarinnar frá Hagsmunasamtökum heimilanna

“...það er alveg á hreinu að það verður forgangsatriði hjá okkur að verja stöðu fólks [heimilanna] fyrir þessum skakkaföllum eftir þeim leiðum sem færar eru í því.”  

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í viðtalsþætti á RÚV 31. Mars 2020

Frá því í mars 2020 hafa Hagsmunasamtök heimilanna varað við fyrirsjáanlegu verðbólguskoti og þeim áhrifum sem það myndi hafa á húsnæðisskuldir heimilanna. Nú hefur sú áhætta raungerst og verðtryggðar skuldir heimilanna hækkað verulega.

Samtökin minna því á kröfur sínar frá því í mars í fyrra sem reyndar voru líka ítrekaðar í september, um að heimilin yrðu varin fyrir hækkun verðtryggðra skuldbindinga sinna vegna verðbólgu af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru.

Í báðum tilfellum var kröfum HH svarað með því að benda á að ekki væri útlit fyrir mikla verðbólgu og það að setja þak á verðtryggingu lána heimilanna, gæti grafið undan trausti á því að seðlabankanum tækist það markmið sitt að halda verðbólgu í skefjum. 

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.