5. Bráðabirgðasamþykktir Landssamtaka heimilanna (vinnuheiti)
1. gr. Heiti, varnarþing og félagssvæði
Samtökin heita Landssamtök heimilanna. Um er að ræða vinnuheiti sem verður endurskoðað á fyrsta aðalfundi samtakanna.
2. gr. Varnarþing og félagssvæði
Heimili samtakanna, skrifstofa og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði samtakanna nær til alls landsins.
3. gr. Tilgangur og markmið
Samtökin eru sameiginlegur vettvangur félagasamtaka. Tilgangur samtakanna er að vinna að hagsmunum félagsmanna aðildarfélaga og –samtaka. Svo sem bættum láns- og leigukjörum neytenda og bættum kaupmætti, lífs- og launakjörum. Samtökin vinna að tilgangi sínum og markmiðum eftir öllum lögmætum leiðum og með réttmætum samtakamætti.
4. gr. Bráðabirgðastjórn
Bráðabirgðastjórn samtakanna skal skipuð þremur mönnum og tveim til vara. Stjórn skal skipta með sér verkum og sitja fram að fyrsta aðalfundi. Stjórnin skal koma saman til fundar að minnsta kosti mánaðarlega og skal hún halda fundargerðir. Að öðru leyti kveður stjórnarformaður stjórnina til fundar, þegar honum þykir þörf og skylt er honum að boða til fundar í stjórninni þegar einn stjórnarmaður óskar þess. Verkefni bráðabirgðastjórnarinnar er að halda utan um starfsemi samtakanna fram að fyrsta aðalfundi. Einstaklingar sem sitja í stjórn fyrirtækja sem hafa mannaforráð, fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingarfélaga eða annarra fjármálastofnana og sjóða, geta ekki setið í stjórn samtakanna.
4. gr. Aðild og úrsögn
Þau félög sem styðja tilgang og markmið samtakanna geta haft aðild að þeim. Stjórn samtakanna afgreiðir aðildarumsóknir, útbýr og ber ábyrgð á framkvæmd aðildarsamninga. Umsókn um aðild skal vera skrifleg. Sama á við um úrsögn.
5. gr. Lýðræðisleg réttindi félaga
Um leið og stjórn samtakanna hefur samþykkt umsókn aðildarfélags öðlast allir skráðir félagar umrædds aðildarfélags eitt atkvæði í kosningum samtakanna.
6. gr. Fyrsti aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum samtakanna. Fyrsti aðalfundur samtakanna skal haldinn í síðasta lagi 15. janúar 2013. Verkefni fundarins verður meðal annars að kjósa stjórn sem leysir bráðabirgðastjórnina af hólmi og afgreiða lög sem leysa þessar bráðabirgðasamþykktir af hólmi. Rétt til setu og atkvæðis á aðalfundi eiga allir félagsmenn aðildarfélaga. Boða skal til aðalfundar með tölvupósti og opinberri tilkynningu á heimasíðu samtakanna og aðildarfélaga með minnst 14 daga fyrirvara. Fundargögn skulu vera aðgengileg félagsmönnum minnst 3 dögum fyrir fund.
7. gr. Gildistími
Bráðabirgðasamþykktir þessar voru samþykktar á stofnfundi samtakanna 4. apríl 2012. Gildistími er frá og með dagsetningu stofnfundar og fram að fyrsta aðalfundi.
8. gr. Árgjald
Árgjald félagsins er samkvæmt samningi við aðildarfélög og tekur mið af fjölda félaga aðildarfélags og verður innheimt einu sinni á ári.
9. gr. Rekstrarafgangur
Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins.
10. gr. Slit
Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á aðalfundi með auknum meirihluta, eða 3/4 hlutum greiddra atkvæða, og renna eignir félagsins til mannúðarmála í samræmi við ákvörðun aðalfundarins.
Grein núverandi og fyrrverandi formanna HH ,,Stéttabarátta 21. aldarinnar og framtíð Hagsmunasamtaka heimilanna" má lesa hér.
Ályktun félagsfundar þann 12. mars 2012 um málið má skoða hér.