1. Skýrsla stjórnar 2011-2012
2. Viðauki 1 - ársyfirlit
3. Ársreikningur 2011
4. Lagabreytingatillögur við samþykktir HH
5. Bráðabirgðasamþykktir Landssamtaka heimilanna (vinnuheiti

1. Skýrsla stjórnar 2011-2012
2. Viðauki 1 - ársyfirlit
3. Ársreikningur 2011
4. Lagabreytingatillögur við samþykktir HH
5. Bráðabirgðasamþykktir Landssamtaka heimilanna (vinnuheiti

Í gær lögðu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmaður neytenda fram nýja lögbannskröfu hjá sýslumanninum í Reykjavík, þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu þessa efnis þann 27. apríl síðastliðinn á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð. Gerðarbeiðendur vildu ekki una þeim úrskurði og í kröfunni sem lögð var fram í gær er nánari skýring á því við hvaða gengistryggðu lán er átt, auk þess sem skýrðar eru þær ótvíræðu afleiðingar sem innheimta greiðsluseðla ólögmætra gengistryggðra lána hefur fyrir neytendur. Úrskurðar sýslumanns er að vænta fyrir lok vikunnar eða í byrjun þeirrar næstu.

Guðmundur Ásgeirsson
Gunnar Magnússon
Jón Tryggvi Sveinsson
Ólafur Garðarsson
Sigrún Viðarsdóttir
Þóra Guðmundsdóttir
Aðalfundur HH verður í kvöld, fimmtudag 31. maí kl. 20:00-22:30 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg.
Stjórn HH hvetur félagsmenn til að gefa sér tíma til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á val stjórnar, breytingar á lögum samtakanna og fylgjast almennt með störfum samtakanna. Samtökin starfa á lýðræðislegum grunni eftir lýðræðislegum hugsjónum og því aðhald og aðkoma félagsmanna mikilvæg.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir
1. Setning
2. Skýrsla stjórnar: Andrea Ólafsdóttir, formaður stjórnar
3. Reikningar samtakanna: Ólafur Garðarsson, gjaldkeri stjórnar
4. Lagabreytingar (sjá fundargögn á heimasíðu)
5. Kosning 7 manna stjórnar (sjá framboð til stjórnar á heimasíðu)
6. Kosning 7 varamanna
7. Kosning skoðunarmanna næsta árs
8. Önnur mál
a. Umsókn HH að Landssamtökum heimilanna
Ragnar Þór Ingólfsson
b. Tillaga stjórnar að árgjaldi 2012
Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa þannig bein áhrif á stefnu og starfsemi samtakanna. Vinsamlega athugið að aðeins skráðir félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarstarfa og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

Á föstudag tilkynnti sýslumaður um úrskurð sinn varðandi lögbannsbeiðni Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda (TN) þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum en myndi vera fordæmisgefandi fyrir aðrar lánastofnanir.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa látið vinna lögfræðiálit um gengislánadóm Hæstaréttar nr. 600/2011 út frá sjónarhorni neytenda. Hér má lesa lögfræðiálitið í heild sinni, og er vakin athygli á að þar fyrir aftan má finna stutta samantekt helstu atriða.
Í boðaðri fyrirtöku hjá sýslumanni í síðustu viku vegna lögbannsbeiðni HH og talsmanns neytenda (TN) var lögmanni gerðarbeiðenda (HH og TM) gefinn frestur þar til í dag, til að kynna sér þau gögn sem gerðarþoli (Landsbankinn) lagði þar fram. Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum (en er fordæmisgefandi) og er þar óskað eftir því að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla gengistryggðra lána.
í dag mættu HH og TN aftur til boðaðrar fyrirtöku þar sem sýslumaður frestaði málinu enn um viku til að Landsbankinn geti kynnt sér álitsgerð HH um Hæstaréttardóm nr. 600/2011, en álitið var lagt fram sem viðbótargögn í dag.
Ákvörðunar sýslumanns um það hvort lögbann verði lagt á innheimtu má vænta fyrir mánaðarmót og því réttast fyrir lántakendur að greiða ekki greiðsluseðla fyrr en í fyrsta lagi á eindaga.

Lögbannsbeiðni á innheimtu gengistryggðra lána sem HH hefur lagt fram ásamt talsmanni neytenda verður tekin fyrir hjá Sýslumanninum í Reykjavík að Skógarhlíð 6 fimmtudaginn 12. apríl, kl. 13.30. Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum en er fordæmisgefandi. Í beiðninni er óskað eftir því að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla gengistryggðra lána vegna þess að þeir eru í öllum tilvikum rangt reiknaðir og því um ólöglega innheimtu að ræða. Eftir dóm Hæstaréttar þar sem afturvirkir vaxtaútreikningar voru dæmdir ólögmætir er ljóst að bankarnir eru í vanskilum við lántakendur sem hafa ofgreitt af þessum lánum um langa hríð.


Þann 15. febrúar síðast liðinn lögðu samtökin fram til embættis Sérstaks saksóknara kæru á hendur bankastjórnendum fyrir að veita gengistryggð lán og fyrir innheimtu á endurútreiknuðum ólögmætum lánum. Eftirfarandi svar við kærunni hefur borist frá embættinu, en kæruna má lesa í heild hér.

umfjölluninni hér á eftir verður gengið út frá því að engin vandamál séu varðandi mælingu á verðbólgu, þ.e. virðisrýrnun gjaldmiðilsins, líkt og í fyrri hlutanum er bent á að hækki raunvexti lána. Slík forsenda er vitanlega empíriskt fráleit en jafnvel þótt hún eigi við er sýnt fram á að Fisher kenningin á ekki endilega alltaf við; það skiptir m.ö.o. máli hvernig verðtrygging er framkvæmd.

Í ljósi ákalls þjóðarinnar um að afnema beri vísitölu á neytendalánum harmar stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna að alþingismenn í stjórn og stjórnarandstöðu hafi á fundi efnahags- og viðskiptanefndar þann 26. mars 2012 ekki getað komið sér saman um að hrinda svo brýnu máli í framkvæmd.

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.
Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202
Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.