Á döfinni

Afskriftatími krafna vegna lána Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu styttur í þrjú ár

Hagsmunasamtök heimilanna vekja athygli þeirra sem misst hafa fasteignir á nauðungarsölu að kröfu Íbúðalánasjóðs og sem sótt hafa um Leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, á nýlegri breytingu á reglugerð um meðferð krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu, þar á meðal í þeim tilvikum sem kröfur sjóðsins hafa verið hærri en endurheimtur þeirra af söluandvirði fullnustueignar við nauðungarsölu. Með reglugerð nr. 359/2010 var stjórn Íbúðalánasjóðs heimilað að afskrifa slíkar kröfur að liðnum fimm árum frá sölu fasteignar. Í júní síðastliðnum stytti félags- og húsnæðismálaráðherra þann tíma hinsvegar niður í þrjú ár með nýrri reglugerð nr. 534/2015 á grundvelli 47. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998.

Lesa áfram...

Hagsmunasamtök heimilanna fordæma aðför Seðlabankans að heimilum og atvinnulífi

Hagsmunasamtök heimilanna fordæma harðlega vaxtahækkanir Seðlabankans sem algjörlega gagnslausa og úrelta aðferð við að draga úr verðbólgu. Það er löngu orðið tímabært að Seðlabankinn hætti að beita handónýtum hagstjórnartækjum sem hafa einfaldlega þveröfug áhrif við það sem ætlað er, enda augljóst að aukinn vaxtakostnaður fer út í verðlag ekki síður en launahækkanir.

Hagsmunasamtök heimilanna skora á Seðlabankann að gefa aðilum vinnumarkaðarins frið til þess að semja um eðlilegar kjarabætur og eyðileggja ekki það viðkvæma ferli með vaxtahækkunum og frekari hótunum um hækkanir sem kollvarpa forsendum kjaraviðræðna.

Það er algjörlega ólíðandi að Seðlabankinn haldi til streitu afneitun sinni gagnvart þeirri staðreynd að vaxtahækkanir hans valda í raun verðbólgu í stað þess að draga úr henni. Seðlabankinn ætti fremur að beita öðrum leiðum til þess að draga úr verðbólgu og þá sérstaklega með því að meina bönkunum að þenja út peningamagn í umferð eins og þeir hafa fengið að gera afskiptalaust hingað til.

Hagsmunasamtök heimilanna skora jafnframt á stjórnvöld og aðila vinnumarkaðsins að fordæma úreltar hagstjórnaraðgerðir Seðlabankans og þrýsta á um að hann breyti þeim og taki framvegis mið af þeim raunveruleika sem við búum við hér á landi.

Lesa áfram...

Ný stjórn HH og ályktun aðalfundar 2015

Hagsmunasamtök heimilanna héldu árlegan aðalfund sinn fimmtudagskvöldið 21. maí.

Á fundinum var aðalstjórn samtakanna endurkjörin en hana skipa: Guðrún Harðardóttir, Jón Helgi Óskarsson, Páll Böðvar Valgeirsson, Pálmey Gísladóttir, Róbert Bender, Vilhjálmur Bjarnason og Þórarinn Einarsson. Varamenn voru kjörnir: Guðrún Indriðadóttir, Sigurður Bjarnason, Jóhann Rúnar Sigurðsson, Sigrún Jóna Sigurðardóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Þorsteinn Sch. Thorsteinsson og Kristján Þorsteinsson.

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna samþykkti einnig svohljóðandi ályktun:

“Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna haldinn þann 21. maí 2015  mótmælir harðlega vaxandi völdum og yfirgangi fjármálaafla í íslensku þjóðfélagi sem leiðir af sér skuldaþrældóm, eignaleysi og landflótta.

Fundurinn krefst þess einnig að gildandi lög um neytendavernd í lánastarfsemi verði virt af dómstólum og endir verði bundinn á það vaxta - og verðtryggingarokur sem hefur valdið íslenskum almenningi ómældu tjóni í marga áratugi.”

Lesa áfram...

Ársskýrsla HH 2014-2015

Hagsmunasamtök heimilanna minna á aðalfund 2015 sem haldinn verður í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg, í kvöld kl. 20:00. Jafnframt er hér birt ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið sem er að ljúka ásamt ársreikningi 2014.

Lesa áfram...

Framboð til stjórnar HH 2015-2016

Eftirfarandi tilkynningar hafa borist um framboð til stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna fyrir aðalfund 2015, sem haldinn verður í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg næstkomandi fimmtudagskvöld 21. maí kl. 20:00.

Framboð til aðalstjórnar:

 

Framboð til varastjórnar:

Lesa áfram...

Telur Hæstiréttur íslenska ríkið bera ábyrgð á óréttmæti verðtryggingar?

Hæstiréttur Íslands kvað þann 13. maí síðastliðinn upp dóm í máli 160/2015 þar sem tekist var á um fjárnám á grundvelli verðtryggðs fasteignaláns. Þá um kvöldið var svo fullyrt í umfjöllun fjölmiðla, þar á meðal RÚV, að með dómnum hefði verðtryggingin staðist áhlaup af hendi Hagsmunasamtaka heimilanna. Daginn eftir var nánast fullyrt, og aftur af hálfu RÚV, að málið væri fordæmisgefandi fyrir ōll ōnnur dómsmál gegn verðtryggingunni. Eftir að hafa kynnt okkur dóminn telja Hagsmunasamtök heimilanna hinsvegar að fullyrðingar í þá átt séu ótímabærar, og þvert á móti sé mörgum spurningum enn ósvarað. Rétt er að taka fram að Hagsmunasamtök heimilanna hafa enga aðkomu að því máli sem dæmt var um, heldur mun mál sem félagsmenn í samtökunum eiga aðild að líklega verða flutt fyrir Hæstarétti með haustinu.

Lesa áfram...

Kæra á hendur fjármálafyrirtækjum vegna peningafölsunar

Hagsmunasamtök heimilanna hafa kært stjórnendur allra banka og sparisjóða til lögreglu fyrir peningafölsun.

Tilefni kærunnar er nýútkomin skýrsla um peningakerfið sem Frosti Sigurjónsson alþingismaður gerði fyrir Forsætisráðuneytið. Í skýrslunni er staðfest með afar skýrum hætti að bankar og sparisjóðir búa í raun til peninga þegar þau veita lán í formi nýrra innstæðna sem svo leggjast við það peningamagn sem þegar er í umferð, en þessi peningasköpun er klárlega í andstöðu við þann einkarétt sem Seðlabanki Íslands hefur einn til þess að búa til peninga eða annan jafngildan gjaldmiðil. Það er því óhjákvæmilegt annað en að líta svo á að en að peningasköpun banka og sparisjóða sé peningafölsun í skilningi 150. grein hegningarlaga.

Hagsmunasamtök heimilanna fagna jafnframt útgáfu skýrslu Frosta Sigurjónssonar um fjármálakerfið sem sýnir fram á þann skaða sem bankarnir hafa valdið heimilum og íslenskum efnahag almennt. Enn fremur hvetja Hagsmunasamtök heimilanna sem flesta til þess að kynna sér efni skýrslunnar og styðja við þær umbætur á fjármálakerfinu sem þar er að finna. Brýnt er að gera úrbætur á kerfinu svo það geti farið að þjóna hagsmunum almennings.

Lesa áfram...

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 21. maí 2015

Félagsmenn vinsamlegast athugið.

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna verður haldinn fimmtudagskvöldið 21. maí 2015 kl. 20:00 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.

Dagskrá:

  1. Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
  2. Skýrsla stjórnar: Vilhjálmur Bjarnason, formaður
  3. Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
  4. Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjöld
  5. Tillaga um breytingu á samþykktum
  6. Kosning 7 aðalmanna í stjórn
  7. Kosning 3-7 varamanna í stjórn
  8. Kosning skoðunarmanna
  9. Önnur mál

Framboð til stjórnar má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Undir dagskrárlið nr. 5 mun verða fjallað um eftirfarandi tillögu um breytingu á samþykktum HH:

"Á eftir 2. mgr. 6. gr. komi ný mgr. svohljóðandi: Framboð til stjórnar skal berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Hafi ekki borist nægur fjöldi framboða er stjórn heimilt að óska eftir framboðum á aðalfundi."

Frá stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Lesa áfram...

Hagsmunasamtök heimilanna ósátt við ítrekaðar frávísanir neytendamála

Hagsmunasamtök heimilanna vilja vekja athygli á að máli vegna kvörtunar sem samtökin beindu til Neytendastofu, hefur verið vísað frá áfrýjunarnefnd neytendamála. Frávísunin byggist á því mati að Hagsmunasamtök heimilanna hafi ekki lögvarða hagsmuni af aðild að slíku máli. Þar með hefur HH verið gert erfitt fyrir að verja hagsmuni þeirra sem til samtakanna leita. HH hafa ítrekað reynt að koma kvörtunum og málum er varða neytendavernd á framfæri til úrlausnar, en oftar en ekki hefur slíkum málum verið vísað frá hlutaðeigandi stofnunum og dómstólum.

Lesa áfram...

Dómsmáli HH um verðtryggð neytendalán áfrýjað til Hæstaréttar

Dómsmáli sem Hagsmunasamtök heimilanna reka fyrir hjón sem eru félagsmenn í HH hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar Íslands. Málið var upphaflega höfðað árið 2012 gegn Íbúðalánasjóði og er tilgangurinn með því að láta reyna á lögmæti kynningar verðtryggðra neytendalána. Þess er krafist í málinu að skilmálar láns hjónanna um verðtryggingu verði dæmdir óskuldbindandi þar sem þeim var ekki kynntur heildarlántökukostnaður lánsins við lántökuna líkt og lög gerðu ráð fyrir.

Lesa áfram...

Neytendur varist gylliboð banka um endurfjármögnun lána

Hagsmunasamtök heimilanna vara neytendur við þeim gylliboðum sem fram hafa komið í nýlegum auglýsingum fjármálafyrirtækja þar sem boðið er upp á endurfjármögnun lána. Neytendum er bent á að skoða öll slík tilboð með fyrirvara um hvort þau séu þeim raunverulega til hagsbóta.

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum