Niðurstöður aðalfundar 2022
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2022 var haldinn 23. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
- Guðmundur Ásgeirsson varaformaður
- Sigríður Örlygsdóttir gjaldkeri
- Einar Valur Ingimundarson ritari
- Hafþór Ólafsson meðstjórnandi
Varamenn: Álfheiður Eymarsdóttir, Björn Kristján Arnarson, Ragnar Unnarsson og Stefán Stefánsson. Þau hafa flest starfað áður í stjórn samtakanna en Álfheiður Eymarsdóttir kemur ný inn í varastjórn.
Aðalfundurinn samþykkti að félagsgjöld 2022 verði óbreytt 4.900 kr. og valkvæð sem fyrr. Þá voru skoðunarmenn reikninga samtakanna, Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir og Sólveig Sigurgeirsdóttir, endurkjörnar. Aðalfundur hefur einnig samþykkt skráningu samtakanna sem almannheillafélag og samþykkt breytingar á samþykktum Hagsmunasamtaka heimilanna til að uppfylla skilyrði til löglegrar skráningar.
Eiga bankarnir alltaf að vera stikkfrí?
Aðalfundur 2022 - ávarp formanns á aðalfundi 23. febrúar
Við í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna höfum stundum haft það á orði að samtökin ættu ekki að vera til; að það ætti ekki að vera þörf fyrir samtök sem þessi. En nú þegar þjóðfélagið og heimurinn allur hefur verið í greipum farsóttar og afleiðingar hennar á efnahagslífið hafa verið áberandi í opinberri umræðu í tvö ár má færa rök fyrir því að þörfin fyrir þau hafi sjaldan eða aldrei verið meiri en nú síðan þau voru stofnuð.
Þörfin eftir hrunið var mikil. Þá tók ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir þá meðvituðu ákvörðun að fórna heimilunum og Hagsmunasamtök heimilanna tóku til varna fyrir þau. Því skal haldið til haga að hefðu Hagsmunasamtök heimilanna ekki verið til staðar hefði enginn tekið til varna fyrir heimilin. Augljóslega var þá, eins og alla tíð síðan, við ofurefli að etja og að minnsta kosti 15.000 fjölskyldur misstu heimili sín, VEGNA stjórnvalda sem með aðgerðum sínum, eða eftir atvikum aðgerðarleysi, festu heimilin í gildru bankanna, þar sem þau gátu enga björg sér veitt. Þetta vitum við sem störfum á vettvangi Hagsmunasamtakanna því mörg okkar lentu í þessum hakkavélum bankanna sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir smíðaði fyrir þá.
Ef við lentum ekki sjálf í þessari skelfingu höfum við horft upp á og orðið vitni að aðförum bankanna gegn ástvinum og fylgst með einhverjum þeirra þúsunda mála sem hafa komið á borð HH. Við vitum hvað getur gerst og við sjáum viðvörunarmerkin, jafnvel þegar enginn annar virðist sjá þau eða vilja viðurkenna stöðuna eins og hún er.
Núna blikka öll viðvörunarljós eins og jólatré á sterum
Ársskýrsla HH 2021-2022
Aðalfundur 2022
Samkvæmt venju eru fundargögn birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundar í formi ársskýrslu.
Félagsmenn eru minntir á aðalfundinn kl. 20:00 miðvikudaginn 23. febrúar 2022, í húsnæði Hjálpræðishersins á Íslandi að Suðurlandsbraut 72, 108 Reykjavík.
Aðalfundur 2022
Fundarboð aðalfundar
Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, miðvikudagskvöldið 23. febrúar 2022 kl. 20:00, í hátíðarsal Hjálpræðishersins á Íslandi að Suðurlandsbraut 72, 108 Reykjavík.