Opið bréf til sveitarstjórna - andsvar vegna álits SÍS um nauðungarsölur
Öllum sveitarstjórnum á landsvísu hefur verið sent svohljóðandi opið bréf auk þess sem afrit þess hafa jafnframt verið send til sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka, ásamt nýskipuðum ráðherrum félags- og húsnæðismálamála, Eygló Harðardóttur, og innanríkismála, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur:
Efni: Stöðvun á nauðungarsölum án dómsúrskurðar
leiðréttingar á misskilningi í forsendum álits SÍS um réttaráhrif þess að sveitarfélög leggist gegn uppboði fasteigna vegna verðtryggðra lána
Áskorun og áminning til nýrrar ríkisstjórnar frá HH
Um leið og stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) óskar þingmönnum og nýrri ríkisstjórn til hamingju með kosningarnar, sem snérust að mestu um baráttumál HH frá upphafi kosningarbaráttunnar, þá er mikilvægt að minna á tvö brýn mál sem þola enga bið og þurfa að klárast á sumarþinginu.
HH undirbúa nýja stefnu gegn Íbúðalánsjóði vegna verðtryggðs fasteignaláns
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur frá 30. apríl sl. þar sem vísað var frá dómi málsókn gegn Íbúðalánasjóði vegna verðtryggðs fasteignaláns, sem Hagsmunasamtök heimilanna standa að baki. Frávísunarkrafan kom frá ríkislögmanni fyrir hönd Íbúðalánasjóðs.
Ný stjórn HH skiptir með sér verkum.
Ný stjórn HH sem kosin var á aðalfundinum 15. maí síðastliðinn hefur nú skipt með sér verkum. Það var gert á stjórnarfundi í gær, sem var annar fundur nýrrar stjórnar en fundir eru haldnir vikulega.
Vilhjálmur Bjarnson var kosinn formaður stjórnar, Pálmey Gísladóttir varaformaður, Gunnar Magnússon ritari og Guðrún Harðardóttir gjaldkeri. Meðstjórnendur eru Páll Böðvar Valgeirsson, Bjarni Bergmann og Róbert Bender. Varamenn í stjórn eru: Una Eyrún Ragnarsdóttir, Sigrún Jóna Sigurðardóttir, Þórarinn Einarsson, Sigrún Viðarsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, Sigrún Birna Jakobsdóttir og Kristján Þorsteinsson.
Opið bréf til sveitarstjórna um stöðvun á nauðungarsölum
Öllum sveitarstjórnum á landsvísu hefur verið sent svohljóðandi opið bréf auk þess sem afrit þess hafa jafnframt verið send til sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka, ásamt nýskipuðum ráðherrum félagsmála, Eygló Harðardóttur, og innanríkismála, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur:
Neytendavernd og nauðungarsölur - íslensk þýðing Evrópudóms
Hagsmunasamtök heimilanna hafa látið gera löggilda íslenska þýðingu á dómi Evrópudómstólsins í máli nr. C-415/11 er varðar neytendavernd við nauðungarsölur og aðrar fullnustugerðir. Dómurinn byggist að stærstum hluta á tilskipun 93/13/EBE um óréttmæta skilmála í neytendasamningum, sem hefur verið innleidd í íslenskan rétt með reglum sem skráðar voru í undirliði 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga (samningalög) samkvæmt lögum nr. 14/1995.
Ályktun aðalfundar 2013 um sveitarstjórnir og nauðungarsölur
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 15. maí 2013, skorar á sveitarstjórnir á landsvísu að stemma stigu við nauðungarsölum sýslumanna og öðrum fullnustugerðum gagnvart íbúum sveitarfélaga sinna, í ljósi þess vafa sem uppi er um lögmæti slíkra gerða á grundvelli fjárkrafna sem vafi leikur á um eða samningsákvæða sem að öllum líkindum eru óréttmæt og þar af leiðandi líklega ólögleg. Einkum og sér í lagi er átt við ákvæði sem kveða á um beina nauðungarsölu án undangengis dómsúrskurðar, en slíkt gengur í berhögg við reglur evrópska efnahagssvæðisins um neytendavernd sem fela í sér ótvíræða skyldu dómstóla og úrskurðaraðila að gæta sérstaklega að neytendarétti varðandi lánssamninga.
Starfsmenn sveitarfélaga eru jafnframt hvattir til þess að gæta hófs í kröfulýsingum á hendur einstaklingum og fjölskyldum vegna vangoldinna opinberra gjalda, í tengslum við nauðungarsölur að frumkvæði fjármálafyrirtækja. Loks er athygli sveitarstjórna vakin á þeim möguleika að stemma stigu við heimilisleysi í sveitarfélaginu með ákvörðun talsvert hærri fasteinagjalda fyrir íbúðarhúsnæði sem lögaðilar hafa eignast í kjölfar nauðungarsölu án undangengins dómsúrskurðar, gjaldþrots eða útburðar. Slík gjöld gætu nýst til þess að standa straum af nauðsynlegri velferðarþjónustu sem sveitarfélaginu er skylt að veita fjölskyldum sem orðið hafa heimilislausar vegna óréttmætra fjármálagjörninga
Ný stjórn kosin á aðalfundi HH
Ný stjórn var kosin á aðalfundi HH í gærkvöldi, miðvikudaginn 15. maí sem haldinn var í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg. Stjórn samanstendur af sjö aðalmönnum og sjö varamönnum.
Aðalstjórn skipa: Páll Böðvar Valgeirsson, Pálmey Gísladóttir, Guðrún Harðardóttir, Gunnar Magnússon, Vilhjálmur Bjarnason, Bjarni Bergmann og Róbert Bender.
Milligöngumaður en ekki raunverulegur “umboðsmaður” skuldara
Hagsmunasamtökum heimilanna (HH) hafa borist þau svör frá velferðarráðuneyti að reglugerð sú sem skylt er setja samkvæmt lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga (nr. 101/2010) sé ekki til.
- gr. Reglugerð um greiðsluaðlögun einstaklinga.
Ráðherra setur að fenginni umsögn umboðsmanns skuldara reglugerð um greiðsluaðlögun einstaklinga þar sem m.a. skal kveða á um starfsemi umsjónarmanna og samræmda framkvæmd greiðsluaðlögunar.
Aðalfundur HH miðvikudaginn 15. maí 2013: Dagskrá og fundargögn
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna verður haldinn næstkomandi miðvikudag 15. maí kl. 20-22 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg.
Dagskrá
- Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
- Skýrsla stjórnar (byggð á annál): Ólafur Garðarsson, formaður stjórnar
- Reikningar samtakanna: Gunnar Magnússon, gjaldkeri stjórnar
- Tillaga stjórnar að breytingu félagsgjalda
- Tillögur að breytingum á samþykktum
- Kosning sjö manna stjórnar (framboð)
- Kosning sjö varamanna í stjórn
- Kosning skoðunarmanna
- Önnur mál
Framboðsfrestur er til 15. maí kl. 20:00 á fundarstað.
Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnarstarfa á aðalfundinum 15. maí
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna verður haldinn næstkomandi miðvikudag 15. maí kl. 20-22 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg. Þar með lýkur starfsári núverandi stjórnar og ný stjórn verður kosin til starfa.
Frambjóðendur til stjórnar 2013
Framboð til aðalstjórnar
Bjarni Bergmann
Guðrún Harðardóttir
Gunnar Magnússon
Kristján Þorsteinsson
Þórarinn Einarsson
Framboð til varastjórnar
Björk Sigurgeirsdóttir
Jón Tryggvi Sveinsson
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
Una Eyrún Ragnarsdóttir
Sigrún Viðarsdóttir