Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Andmælum hvítþvættinum við Hörpuna á morgun 27. okt

Rétti tíminn til að andmæla stöðu heimila landsins er þegar Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, Seðlabankinn og Íslenska ríkið halda alþjóðlega ráðstefnu, montfund, um hvað rosalega vel hafi til tekist hér á landi í samstarfi þessara aðila við að koma bankakerfinu af stað eftir hrun. Dagsetningin er 27 október, á fimmtudegi í Hörpunni. Þarna er gott tækifæri fyrir venjulega Íslendinga til að segja hvað þeim finnst um hvernig þeim hafi til tekist í skuldamálum heimilanna.


„Efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur skilað miklum árangri við að koma á stöðugleika í íslenskum þjóðarbúskap og stuðla að efnahagsbata,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri og bætir við: „Hér kunna að vera athyglisverðir lærdómar fyrir alþjóðasamfélagið.“

Hvað finnst þeim sem eru með stökkbreytt lán á heimilum sínum um þann lærdóm sem alþjóðasamfélagið getur lært af þessu samstarfi aðilanna, eigum við að láta alþjóðasamfélagið vita með því að mæta fyrir utan og segja þeim hvað okkur finnst?

„Við hlökkum til að ræða opinskátt um hið „algera fárviðri“ sem skall á Íslandi árið 2008, um núverandi stöðu og þá lærdóma sem draga má af reynslu Íslendinga. Það gleður mig að geta sagt að gagnvirk samvinna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn stuðlaði að því að Ísland hélt velli sem norrænt velferðarríki,“ segir Árni Páll Árnason, efnhags- og viðskiptaráðherra.

Það er frábært að Árni Páll er tilbúinn að ræða við félaga sína um hvað vel hafi til tekist. Ert þú sammála um að vel hafi til tekist? Ef ekki þá er tækifærið að láta alþjóðasamfélagið vita.

Eigum við að ræða opinskátt við alþjóðasamfélagið um reynslu venjulegra heimila með stökkbreytt lán og kynna verðtrygginguna á heimilslánum fyrir þeim?

Nú er tækifærið, andmælum hvítþvættinum saman þann 27 október fyrir framan Hörpuna.

Í tilefni dagsins er rétt að vísa til greinar á pressunni í dag "Nýtt íslenskt bankahrun"

Ráðstefnan byrjar kl. 8 og stendur yfir allan daginn til kl. 17.15 - við eigum von á að fólk andmæli allan daginn.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum