Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Ályktun stjórnar HH um niðurstöður skýrslu Landssambands Lífeyrissjóða um fjárfestingar sjóðanna í aðdraganda bankahrunsins.

Í ljósi niðurstaðna skýrslu rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna vilja Hagsmunasamtök heimilanna (HH) koma eftirfarandi á framfæri:

Stjórn HH furðar sig á því hvernig óábyrgar lánveitingar, eins og þær sem tíðkuðust hjá lífeyrissjóðunum í aðdraganda bankahrunsins, geti viðgengist.

Samtökin skora á Alþingi að láta gera ítarlega og óháða úttekt á lífeyrissjóðum, þar sem meðal annars verði rannsakað hvort stjórnir sjóðanna hafi með fjárfestingastefnu eða ákvörðunum sínum brotið gegn sjóðsfélögum og almenningi. Einnig að ráðist verði í heildarendurskoðun á íslenska lífeyrissjóðakerfinu en sterk rök og vísbendingar liggja að því að það sé ósjálfbært.

Stjórn HH telur lýðræðisvæðingu lífeyrissjóðanna vera eina af þeim grundvallarforsendum sem byggja verður á þegar rætt er um endurskoðun á kerfinu. Það eru sjálfsögð lýðréttindi að sjóðsfélagar kjósi stjórnir síns sjóðs með beinni kosningu.  Hægt er að ganga strax í það mál á meðan rannsókn á lífeyrissjóðunum stendur yfir.

Stjórn HH hafnar þeim 170 milljarða króna reikningi sem lántakendum verðtryggðra lána hefur verið sendur af lífeyrissjóðunum í formi verðbóta frá ársbyrjun 2008 til að borga upp í tæplega 500 milljarða tap sjóðanna.  Ekki er forsvaranlegt að velta þessum kostnaði yfir á lántakendur.

Stjórn HH skorar á alla stjórnarmenn, forstjóra og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða sem bera ábyrgð á því hvernig fór að segja af sér.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum