Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Fimm stærstu bankarnir semja við bandarísk stjórnvöld um leiðréttin​gar húsnæðislá​na

Bandarísk stjórnvöld eru að ná samkomulagi við fimm af stærstu bönkum landsins um leiðréttingar húsnæðislána.  Alls mun um 26 milljörðum dollara verða varið til aðgerðarinnar, sem felst í því að skuldir verða að hluta til lækkaðar og í öðrum tilvikum endurfjármagnaðar á lægri vöxtum.  Um 750 þúsund Bandaríkjamenn, sem misst hafa heimili sín frá september 2008 til loka 2011 fá sendan tékka, sem nemur 2000 dollurum. Samtals hafa um 4 milljónir manna misst heimili sín í Bandaríkjunum frá ársbyrjun 2007.



Þessi 26 milljarða dollara aðgerð mun aðeins hjálpa hlutfallslega litlum hópi þeirra milljóna skuldara sem eru í alvarlegum vanda staddir, en samkvæmt  New York Times skulda um 20% bandarískra húsnæðiseigenda meira en virði húseigna sinna.  Samtals nema skuldir umfram eignir um 700 milljörðum dollara.  Það má einnig ljóst vera að 2000 dollarar hafa harla lítið að segja fyrir þá einstaklinga sem misst hafa heimili sín. Samkomulagið mun því líklega ekki skipta sköpum hvað varðar skuldavanda bandarískra heimila. 

Ástralski hagfræðingurinn Steve Keen var einn þeirra sem spáði fyrir um hið alþjóðlega fjármálahrun, en hann var einmitt í viðtali í Silfri Egils nú um helgina.  Keen mælist til þess að þjóðir heims fari í róttækar aðgerðir til að færa niður skuldir almennings.  Ríkisstjórnir verði að viðurkenna ósjálfbæra skuldastöðu heimilanna ef það á að takast að finna leið út úr efnahagskreppunni.  Þá er líklega þörf á mun stærri aðgerðum en þeim sem bandaríkjastjórn hyggst nú ráðast í.

Sjá nánar í New York Times:


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum