Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

HH ætla ekki að una úrskurði sýslumanns

Á föstudag tilkynnti sýslumaður um úrskurð sinn varðandi lögbannsbeiðni Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda (TN) þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána.  Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum en myndi vera fordæmisgefandi fyrir aðrar lánastofnanir.



Í úrskurði sýslumanns er kröfu um lögbann hafnað á þeirri forsendu að ekki sé nægilega skýrt afmarkað til hvaða skuldabréfa lögbannsbeiðnin tekur, þ.e.  ekki sé nægilega skýrt við hvaða gengistryggðu lán sé átt.  Einnig telur sýslumaður að ekki hafi verið sýnt nægilega fram á að innheimta greiðsluseðla ólögmætra gengistryggðra lána hafi ótvíræðar afleiðingar fyrir neytendur.

Í úrskurðinum kemur hins vegar fram að Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda hafi  á grundvelli laga nr. 141/2001 (um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda) fullt umboð til þess að leggja fram lögbannsmál af þessu tagi hér á landi og gagnvart innlendum aðilum.
HH og TN munu ekki una þessum úrskurði og verður ný lögbannskrafa lögð fram á næstu dögum með afmarkaðri hætti og frekari rökstuðningi varðandi þau atriði sem sýslumanni þótt á vanta og byggði frávísun sína á.

Úrskurð sýslumanns í heild sinni má lesa hér.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum