Svör þingmanna vegna frumvarps HH um afnám verðtryggingar
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni hafa HH óskað eftir samstarfi við þingmenn um að flytja frumvarp samtakanna um afnám verðtryggingar neytendalána. Frumvarpið hefur verið sent á einn þingmann úr hverjum flokki með ósk um að hann gerist meðflutningsmaður, en þannig vonast HH til að mynda þverpólitíska samstöðu um málið. Það ætti að vera auðsótt mál, a.m.k, er litið er til vilja grasrótar stjórnmálaflokkanna, en ALLIR flokkarnir hafa ályktað um leiðréttingu og/eða afnám verðtryggingar (samantekt hér).
Þingmennirnir og svör þeirra eru eftirfarandi:
Lilja Mósesdóttir: Jákvætt svar, óskar eftir fundi með HH um málið
Margrét Tryggvadóttir: Jákvætt svar, óskar eftir fundi með HH um málið
Eygló Harðardóttir: Ekkert svar
Guðlaugur Þ. Þórðarson: Ekkert svar
Helgi Hjörvar: Ekkert svar
Ögmundur Jónasson: Ekkert svar
Guðmundur Steingrímsson: Neikvætt svar "Ég er ekki reiðubúinn til þess að vera meðflutningsmaður að frumvarpinu. Ég hef fullan skilning á ykkar baráttu og ber mikla virðingu fyrir ykkar málflutningi, en ég hef þó nokkuð aðra sýn á þetta viðfangsefni, sýnist mér, sem gerir það að verkum að mér er ókleift að gerast meðflutningsmaður.
Mér finnst til mikils að vinna að koma íslenskum almenningi út úr því efnahagsumhverfi sem gerir verðtryggð húsnæðislán, því miður, fýsileg fyrir suma lántakendur. Á meðan grunnurinn er svo ótraustur sem raun ber vitni og stjórnvöld virðast ekki geta mótað sannfærandi stefnu um að koma á stöðugra efnahagsumhverfi er viðbúið að verðbólga verði enn höfuðfjandi Íslendinga. Óverðtryggð lán verða því með breytilegum vöxtum, sem taka mið af verðbólgu. Slík lán eru þegar í boði hverjum sem þau kýs. Ég vil ekki standa að því, með lagasetningu, að slík lán -- með tilheyrandi áhættu fyrir heimili -- verði þau einu í boði á Íslandi. Sérstaklega ekki á meðan raunhæft opinbert plan um að koma okkur út úr þessu efnahagsumhverfi skortir.
Verðtryggingin er ömurleg. Ég vil losna við hana. BF vill losna við hana. Í mínum huga endurspeglar hún þó fyrst og fremst uppgjöf í viðureigninni við hinn raunverulega vanda, sem er verðbólgan og óstöðugleikinn. Takist okkur að yfirbuga þann fjanda mun renna upp betri tíð fyrir heimili á Íslandi, þar sem Íslendingar geta notið húsnæðislána af svipuðum toga og í nágrannalöndum okkar, þar sem algengt er að 3-5% fastir vextir bjóðist á óverðtryggðum lánum til langs tíma.
Þangað vil ég komast. Það finnst mér vera mikilvægasta verkefnið. Því markmiði er einmitt ágætlega lýst í Ályktun stjórnar Bjartrar framtíðar. Móta þarf raunhæfa stefnu sem skilar okkur að þessu markmiði. Hún hefur ekki verið mörkuð af hálfu stjórnvalda.
Við í BF erum að sjálfsögðu mjög opin fyrir viðræðum og samstarfi við Hagsmunasamtök heimilanna um allt sem lýtur að bættum hag heimilanna, þótt okkur kunni að greina á um leiðir."
Róbert Marshall: Neikvætt svar.