Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Endurupptaka heimil vegna gengistryggðra lána

Þeir sem hafa verið sviptir eignum með fjárnámi eða nauðungarsölu vegna vanskila á gengistryggðu láni, eða verið úrskurðaðir gjaldþrota vegna slíkra lána, geta átt rétt á endurupptöku slíkra mála fyrir dómstólum.

Leiðbeiningar fyrir þá sem geta nýtt sér þessa heimild munu birtast hér á heimasíðu samtakanna á næstu dögum, með nánari upplýsingum um skilyrði og nauðsynleg gögn vegna beiðni endurupptöku.

Vakin er sérstök athygli á því að frestur til að skila inn beiðni um endurupptöku rennur út 29. september n.k.

Heimild fyrir endurupptöku eignasviptingar á grundvelli ólögmætra gengistryggðra lána er í XIII. bráðabirgðaákvæði við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Ákvæðið gildir í níu mánuði frá gildistöku bráðabirgðaákvæðisins eða til 29. september næstkomandi og gildir fyrir öll lán sem voru ólöglega gengistryggð. Gildir þá einu hvort um fasteignakaup var að ræða, bílakaup eða hvað annað.

Hagsmunasamtök heimilanna eru í samstarfi við ERGO lögmenn að vinna að almennum leiðbeiningum og úrræðum fyrir þá sem geta nýtt sér þessa heimild og verða þær birtar hér á heimasíðu samtakanna á næstu dögum. Þar mun m.a. koma fram hvaða gögn þurfa að liggja fyrir svo lögmaður geti fyrir hönd lántaka farið fram á endurupptöku.

Ákvæðið er svohljóðandi:

Ef gengið hefur dómur um kröfu samkvæmt lánssamningi með óheimilli gengistryggingu skal endurupptaka heimil skv. XXIII. kafla laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, án tillits til þess hvort tímafrestir séu liðnir samkvæmt ákvæðum 137. gr. sömu laga. Sama skal gilda um úrskurði um gjaldþrotaskipti. Skuldara er jafnframt heimilt að óska eftir endurupptöku fullnustugerða hafi slíkar gerðir farið fram á grundvelli lánssamninga sem höfðu að geyma ólögmæt ákvæði um gengistryggingu. Heimildir til endurupptöku samkvæmt þessu ákvæði falla niður að liðnum níu mánuðum frá gildistöku laga þessara.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum