Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Barátta Jóhönnu gegn verðtryggingunni

Á þingmannsárum sínum, barðist Jóhanna Sigurðardóttir ötullega gegn verðtryggingunni.

Hún benti meðal annars á óréttlæti þess, að skuldir heimilanna hækki um hundruðir milljónir og jafnvel milljarða í hvert sinn sem nauðsynjavara á borð við kartöflur hækki í verði.

Hún talaði um fáránleika þess að Ísland verðtryggði eitt OECD-landanna húsnæðislán heimilanna og glapræði þess, að þau lán hafi af völdum verðtryggingarinnar margfaldast á sama tíma og þau lækki í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Og að sjálfsögðu krafðist hún þess að stjórnvöld sættu pólitískri ábyrgð fyrir að afnema ekki verðtrygginguna nú þegar í þágu almanna hagsmuna.

Til marks um þessa einörðu baráttu Jóhönnu gegn verðtryggingunni er grein sem birtist eftir hana í Morgunblaðinu 2. nóvember 1996. Þar hefur hún m.a. þetta að segja um aðgerðaleysi þáverandi ríkisstjórnar:

"Allt þetta ætti nú að skapa forsendur til að afnema verðtryggingu á fjárskuldbindingum heimilanna. En allt kemur fyrir ekki. Rökstuðningur ráðherrans í svari við fyrirspurn minni byggist á gamla verðbólguhugsunarhættinum, - sem ríkisstjórnin virðist föst í."

Þá eru lokaorð hennar með hliðjsón af núverandi stöðu heimilanna eftirtektarverð:

"Ríkisstjórnin kemst ekki hjá því að svara af hverju ísland, sem býr við svipað efnahagsumhverfi og þjóðir sem við berum okkur saman við, hafi eitt landa verðtryggingu á lánum til heimilanna. Og það sem verra er. Ætli að viðhalda henni. Því verður að breyta."

Það átakanlegasta við þessa upprifjun er sú augljósa staðreynd, að þrátt fyrir öll þau ár sem liðin eru frá því að hún birtist, hefur ekkert breyst, nema að fjárskuldbindingar heimilanna hafa hækkað margfalt meira en nokkurn óraði fyrir af völdum verðtryggingarinnar.

Sjá greinina í heild sinni

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum