Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Lögmæti verðtryggingar véfengt

Samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands er verðtryggingu lánsfjár þannig háttað, að höfuðstóll er uppfærður í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs, ásamt vöxtum og afborgun af viðkomandi láni.

Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna fara þessar reglur Seðlabankans út fyrir heimildir laga, með þeim afleiðingum að verðtryggingu lánsfjár hefur um árabil skort viðhlítandi lagastoð.

Umboðsmaður Alþingis hefur veitt Seðlabanka Íslands frest til 26. ágúst n.k. til að gera grein fyrir því hvort og þá hvaða lagstoð sé fyrir þessum reglum.

Aðdragandi málsins er sá að Hagsmunasamtök heimilanna óskuðu eftir áliti embættisins í maí s.l. á því, hvort reglur bankans nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár séu í samræmi við lög um vexti og verðtrygginu.

Stjórn samtakanna ákvað að leita til embættisins á grundvelli lögfræðiálits sem unnið var í tengslum við verðtryggingarteymi HH.

Meginniðurstaða þess er að einungis sé heimilt að reikna verðbætur á greiðslur lána, þ.e. afborganir. Ákvæði laganna séu að þessu leyti skýr og engar heimildir séu fyrir því að leggja verðbætur við höfuðstól.

Höfuðstólsfærslan tekur mið af breytingum á vísitölu neysluverðs, eins og áður segir og eru verðtryggð lán uppfærð í samræmi við það við hverja afborgun. Þessi aðferðafræði felur í sér margfeldisáhrif sem magna upp höfuðstól lánanna og hefur sem slík ekkert með verðgildi eða verðtryggingu að gera.

Þvert á móti, þá má með einföldum útreikningum sýna fram á að þessi aðferðafræði geri lántakendum að greiða verðtryggð lán margfalt til baka að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, þökk sé margfeldisáhrifunum.


Sjá frétt RÚV um málið

Sjá frétt Stöðvar 2 um málið


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum