Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Lögsókn gegn verðtryggingu neytendalána

Stofnaður hefur verið sérstakur reikningur í nafni Hagsmunasamtaka heimilanna til að fara í málarekstur til að fá úr því skorið hvort verðbindandi ákvæði í neytendalánum standist lög. Lagateymi HH hefur verið að hittast að undanförnu til að ræða áætlun um málsókn og hafa fundist þó nokkrar gapandi holur í lagagrunni verðtryggingar. Komin er gróf mynd á áætlunina og mun hún skerpast enn frekar á næstu vikum.

Mikil vinna er framundan við gagnaöflun greinargerðir ofl. lagalegs eðlis. Hagsmunasamtök heimilanna bjóða nú félagsmönnum sem öðrum að leggja málefninu lið með fjárframlögum inn á bankareikning 1110-05-250427 kt. 520209-2120. Nú þegar eru yfir 1.100.000 á reikningnum sem samtökin hafa lagt til úr félagssjóði auk framlaga stjórnarmanna. Fyrir liggja loforð frá nokkrum aðilum sem munu væntanlega tínast inn á næstunni.

Þess ber að geta að samtökin geta hvorki þegið framlög frá stjórnmálaflokkum né fjármálafyrirtækjum.

Ofangreindri mynd var bísað af vef Kristjáns Þórs Júlíussonar sem sagði verðtryggð lán í hæstu hæðum og leggur til að þau séu tekin niður. Við tökum undir með Kristjáni og biðjum menn að lenda þessari biluðu vél áður en stórslys hlýst af.

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum