Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

HH kæra Dróma til Samkeppniseftirlitsins

Hagsmunasamtök heimilanna hafa beint formlegu erindi til Samkeppniseftirlitsins þar sem óskað er eftir rannsókn á fullnustugerðum af hálfu fjármálafyrirtækja og Dróma hf. á meðan skilyrði um frestun þeirra voru í gildi, samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um undanþágu til samstarfs um úrvinnslu mála vegna ólöglegra gengistryggingarákvæða í lánasamningum.



Í kjölfar dóms Hæstaréttar þann 15. febrúar síðastliðinn var fyrir hönd fjármálafyrirtækja leitað undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga, til að heimila þeim samráð um endurútreikning, málaferli og ýmis úrlausnarefni vegna óskuldbindandi samningsákvæða um gengistryggingu. Þann 9. mars sl. féllst Samkeppniseftirlitið á veitingu takmarkaðrar undanþágu fyrir slíku samstarfi með ákvörðun sinni nr. 4/2012. Að fengnum athugasemdum meðal annars frá Hagsmunasamtökum heimilanna, voru þó sett ýmis skilyrði fyrir undanþágunni, og kveðið á um viðurlög við brotum.

Samkvæmt 6. gr. ákvörðunarorðanna var sett það skilyrði að meðan á samstarfinu stæði skyldu lánveitendur fresta öllum fullnustuaðgerðum sem byggja á lánum sem ljóst sé að falli undir dóm Hæstaréttar í máli nr. 600/2011. Hagsmunasamtök heimilanna hafa hinsvegar undir höndum gögn sem sýna fram á a.m.k. nokkur tilvik þar sem Drómi og Arion banki hafa haldið fullnustuaðgerðum til streitu á grundvelli slíkra lána, eftir að undanþáguskilyrðin tóku gildi. Samtökin hafa því farið fram á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á því hvort umrædd fjármálafyrirtæki og jafnvel fleiri, kunni þannig að hafa gerst brotleg við skilyrðin og þar með við samkeppnislög.

Þess má geta að þetta er í annað skipti sem samtökin sjá sig knúin til að beina upplýsingum til Samkeppniseftirlitsins vegna meintra brota gegn skilyrðum ákvörðunar nr. 4/2012. Síðast þann 14. ágúst var það vegna vísbendinga um þátttöku Samtaka fjármálafyrirtækja í samráðinu þvert gegn skilyrðum undanþágunnar, sem Samkeppniseftirlitið hefur nú brugðist við og hafið rannsókn á.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum