Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Synjun á lögbannskröfu kærð til Hæstaréttar

Kærð hefur verið til Hæstaréttar synjun Héraðsdóms Reykjavíkur á kröfu Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda (TN) um lögbann á innheimtu Landsbankans vegna ólögmætra gengistryggðra lána.

Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í apríl sl. kröfu HH og TN um að lögbann yrði sett á útsendingu Landsbankans á greiðsluseðlum vegna ólögmætra gegnislána og innheimtu þeirra. Krafist var lögbanns á meðan réttaróvissa ríkir og endurútreikningar lánanna eru í uppnámi eftir að Hæstiréttur úrskurðaði í máli nr. 600/2011 að afturvirk endurákvörðun vaxta væri óheimil.

Í úrskurði Sýslumanns var ekki að finna nein rök fyrir synjun lögbannskröfunnar, en HH og TN kærðu þann úrskurð til Héraðsdóms sem eins og áður sagði staðfesti synjunina.

 

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda  byggðu kröfur sínar m.a. á lögum um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda (nr. 141/2001), en með auglýsingu innanríkisráðherra (nr. 1320/2011) var báðum sóknaraðilum veitt heimild til að leita lögbanns  í þágu neytendahagsmuna á grundvelli laganna. Í úrskurði sínum frá 14. september 2012 féllst héraðsdómur ekki á að þessi heimild ætti við þar sem bæði sóknaraðilar og varnaraðili í málinu séu íslenskir, og álítur að lögum (nr. 141/2001) hafi einungis verið ætlað að koma í veg fyrir ólögmætar athafnir þegar viðskipti eru stunduð yfir landamæri aðildarríkja EES.

Þessum formkröfum eru sóknaraðilar alfarið ósammála, enda kveða umrædd lög beinlínis á um veitingu heimilda innlendraaðila til málshöfðunar fyrir innlendum dómstólum, og er ekkert sem útilokar að slíkt mál sé hægt að höfða gegn innlendumaðilum eins og fjölmörg dæmi eru um á evrópska efnahagssvæðinu. Það sama hljóti að eiga við hér á landi enda kveði stjórnarskrá og alþjóðasamningar á um bann við mismunun eftir þjóðerni eða búsetu málsaðila. Því sé afar brýnt að Hæstiréttur skeri úr um þessi mikilvægu réttindi í þágu heildarhagsmuna neytenda.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum