Áskorun til stjórnvalda um rannsókn á því sem var gert eftir hrun
Rannsókn er nauðsynleg til að auka gagnsæiog efla traust almennings á stjórnsýslunni og stjórnmálum.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að standa að gerð rannsóknarskýrslu á þeim ákvörðunum sem voru teknar og þeim aðgerðum sem farið var í gagnvart heimilum landsins eftir hrun.
Hagsmunasamtök heimilanna beina því enn fremur til alþingismanna og annarra sem eiga að láta hagsmuni almennings sig varða að styðja og berjast fyrir rannsókn á því sem gert var eftir hrun.
Í haust verða liðin 10 ár frá fjármálahruni og kominn tími til að heimilin njóti vafans og fái uppreist æru í baráttu sinni við „kerfi“ sem er þeim vægast sagt fjandsamlegt.
Það er ljóst að mjög margar af þeim aðgerðum sem farið var í eftir hrun ollu heimilum landsins stórfelldum skaða, skaða sem aldrei hefur verið viðurkenndur, skaða sem aldrei hefur verið metinn, skaða sem enn sér ekki fyrir endann á og heimilin sitja uppi með.
Hrunið sem ekki mátti persónugera með því að nefna neina þá sem léku aðalhlutverkin var persónugert í „Jónum og Gunnum“ þessa lands. Þeim hefur verið refsað og þau hafa borið byrðarnar á meðan afbrotamennirnir sjálfir hafa aðallega þurft að hafa áhyggjur af því að koma hagnaðinum, sem enn streymir til þeirra í gott skjól.
Það er því brýn þörf á sambærilegri rannsóknarskýrslu og þeirri sem gerð var um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna en nú þarf að fjalla um aðgerðir stjórnvalda í kjölfar hrunsins og afleiðingar þeirra fyrir heimili landsins.
- Meðal þess sem þarf að rannsaka er:
- Stofnun nýju bankanna og yfirfærsla lánasafna gömlu bankanna til þeirra
- Afhending stórra eignarhluta í bönkunum til þrotabúa föllnu bankanna
- Úrlausnir mála vegna ólöglegra lánaskilmála og framferðis kröfuhafa
- Hversu margar fjölskyldur hafa verið sviptar heimilum sínum frá hruninu
- Hversu margar fjölskyldur voru hraktar að ósekju út á vonlausan leigumarkað og hver staða húsnæðismála væri núna ef það hefði ekki verið gert
- Greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara sem hefur reynst mörgum illa
- Ólöglegar vörslusviptingar ökutækja á grundvelli ólöglegra krafna
- Skortur á samráði við fulltrúa neytenda og samtök þeirra
- Samtökin benda enn fremur á að:
- Verðtrygging húsnæðislána er skaðleg en hana er einfalt að afnema
- Málsmeðferð við nauðungarsölur og aðfarir brýtur í bága við mannréttindi
- Gengistryggð lán hafa ekki enn verið leiðrétt í samræmi við neytendarétt
- Úrvinnsla slíkra mála hingað til hefur brotið í bága við stjórnarskrárvarin réttindi neytenda og skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum
- Alþingi og dómstólar hafa verið blekkt af málflytjendum fjármálafyrirtækja
- Endurskoða þarf þær breytingar sem gerðar voru á vaxtalögum með lögum nr. 151/2010 neytendum í óhag og stöðva aðfarir á hendur heimilum á meðan
- Að dómstólar hafa ítrekað fellt dóma út frá hagsmunum fjármálafyrirtækja sem standast ekki skoðun út frá lögum og gildandi rétti
Allar aðfarir og nauðungasöluferli þarf að sjálfsögðu að stöðva meðan á gerð skýrslunnar stendur – enda komið nóg af slíkum ófögnuði!
Hagsmunasamtök heimilanna bjóða fram aðstoð sína við rannsóknina því innan þeirra vébanda leynist gífurleg þekking á málaflokknum auk ýmissa gagna sem rannsóknaraðilum væri fengur að.
Við væntum skjótra svara um aðgerðir frá forsætisráðherra. Tíminn er að renna út, við höfum beðið í meira en 9 ár þau mega ekki verða 10.
Hér má sjá auglýsingu þessa efnis sem birtist í Fréttablaðinu um síðustu helgi:
Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður HH var í viðtali um áskorunina í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni en hér má nálgast upptöku af viðtalinu.
Jafnframt voru Ásthildur Lóa og Guðmundur Ásgeirsson starfsmaður HH gestir í síðdegisútvarpi Útvarps Sögu og ræddu um áskorunina en hér má nálgast upptöku af þættinum.