Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Samstarf í neytendavernd á fjármálamarkaði

Samstarf í neytendavernd á fjármálamarkaði

Þjónustusamningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fyrsta júní síðastliðinn undirritaði formaður Hagsmunasamtaka heimilanna þjónustusamning fyrir hönd samtakanna, við ráðuneyti menningar- og viðskipta um óháða ráðgjafaþjónustu og réttindagæslu á fjármálamarkaði. Samstarfið er tímamót í starfi samtaka sem hafa lengi talað opinberlega fyrir auknum réttindum og bættum kjörum lántakenda í viðskiptum sínum. Þá ekki síst í sambandi við bæði fjárhagslegar og félagslegar afleiðingar efnahagshrunsins. Það hefur lengi verið þörf á að styrkja stoðir neytendaréttar á fjármálamarkaði og óháð ráðgjafarþjónusta er ein birtingarmynd þess.

Réttindagæsla á fjármálamarkaði er mikið hagsmunamál og nauðsynlegt að landsmönnum sé gefinn kostur á óháðri ráðgjöf í fjárhagslegum skuldbindingum sínum, sem fer fram með fræðslu, stuðningi og með tilliti til verndar í löggjöfinni. Hagsmunir lántakenda, rétturinn til heimilis og sanngjarnra viðskiptahátta verða ávallt í forgangi í þeirri hagsmunagæslu.

Aðgangur að þjónustu Hagsmunasamtaka heimilanna er greiður, því félagsgjald samtakanna er valkvætt og er haldið eins lágu og nokkur kostur er. Fjárhagslegur stuðningur ráðuneytisins og fyrri styrkur frá félagsmálaráðuneytinu hefur gert samtökunum kleift að ráða til sín sérfræðing í fullt starf. Það sem áður var hlutastarf er nú orðið að fullu starfi. Samtökin munu áfram vinna að almannahag og lögfræðingur samtakanna mun áfram sinna lögfræðilegum álitamálum í sjálfboðaliðastarfi. 

Samtökin þakka veitt brautargengi og binda vonir við að samstarfið við ráðherra neytendamála verði farsælt.

Hagsmunasamtök heimilanna

 

Veittu málstaðnum lið. Skráðu þig í samtökin - Hér


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum