Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Áhrif vaxtahækkana - ákall til fjármálastofnana

Áhrif vaxtahækkana - ákall til fjármálastofnana

Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent forstöðumönnum einstaklingsþjónustu bankanna eftirfarandi áskorun: Ákall til fjármálastofnana um samfélagslega ábyrgð, aukna og samhæfða þjónustu. Borið hefur á því í fyrirspurnum til Hagsmunasamtaka heimilanna vegna aukinnar greiðslubyrði lána að einstaklingar fái ekki alltaf þá þjónustu sem þeir þarfnast og eiga tilkall til, hjá viðskiptabanka sínum. Af þeim sökum sendu samtökin fyrirspurn til þjónustudeilda allra viðskiptabanka heimilanna, í desember síðastliðnum.

Skortur á samhæfðri þjónustu

Það er áberandi við nánari ígrundun á svörum bankanna og fyrirspurnum sem til samtakanna hafa borist, að skortur er á samhæfðri þjónustu vegna þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu. Eina niðurstaðan sem hægt er að draga af þessum skorti er ábyrgðar- og sinnuleysi fjármálastofnanna gagnvart þeim kostnaðarauka sem þeir hafa varpað yfir á heimilin, þegar hagnaður af starfseminni er langt fyrir ofan ásættanlega arðsemi. Við auknum greiðsluerfiðleikum heimila þurfa fjármálastofnanir að bregðast við með samfélagslegri ábyrgð.

Þjónustan við lántakendur í greiðsluvanda vegna vaxtahækkanna virðist því æði misjöfn og oftar en ekki er lántakandi sendur að tilhæfulausu í greiðslumat, sem getur kostað frá 5.500 til 14.000 krónur. Flestir sem leitað hafa síðan eftir aðstoð Hagsmunasamtaka heimilanna fá að lokum úrlausn sinna mála með aðstoð og leiðbeiningu frá ráðgjafa samtakanna.

Samfélagsleg ábyrgð

Hagsmunasamtök heimilanna senda því fjármálastofnunum ákall um að stíga fram í sinni þjónustu á árinu með samfélagslegri ábyrgð og hafa m.a. eftirfarandi í huga:

Samkvæmt lögum um undanþágur frá lánshæfis- og greiðslumati vegna fasteignalána, þarf banki ekki að framkvæma nýtt greiðslumat vegna skilmálabreytinga sem ekki leiða til meira en 20% hækkunar á greiðslubyrði lána. Þar að auki ber viðskiptabanka skylda til þess að mæta viðskiptavini sem á við skammvinnan greiðsluvanda að stríða. Reglur um hámark greiðslubyrðarhlutfalls gilda ekki um samninga um fasteignalán vegna endurfjármögnunar sökum greiðsluerfiðleika neytenda, sem kann að hækka höfuðstól láns.

Í því sambandi má minna á að bönkunum bar ekki skylda til að hækka álögur sínar, þ.e.a.s. að hækka vexti lána umsvifalaust í kjölfar stýrivaxtahækkanna ítrekað og síendurtekið. Þar að auki má minna á að fyrir um það bil þremur árum var því haldið að lántakendum að nú væri Ísland komið inn á lágvaxtatímabil fasteignalána. Stór hópur lántakenda tók því lán með breytilegum vöxtum í góðri trú.

Hagsmunasamtök heimilanna


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum