Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Ályktun aðalfundar 2021

Ályktun aðalfundar 2021

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna á árinu 2021 var haldinn 23. febrúar síðastliðinn. Fyrir hönd félagsmanna og sem æðsta vald í málefnum samtakanna ályktaði fundurinn eftirfarandi:

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna lýsir því yfir að ekki komi til greina að selja ríkisbankana, hvorki að hluta né öllu leyti, fyrr en Alþingi hafi séð til þess að farið verði ofan í saumana á þeirri meðferð sem heimilin máttu þola í kjölfar bankahrunsins af hálfu fjármálafyrirtækja og stjórnvalda, með því að láta gera Rannsóknarskýrslu heimilanna.

Hagsmunasamtök heimilanna fóru fyrst í mars á síðasta ári fram á að þak yrði sett á verðtryggingu lána heimilanna til að vernda þau fyrir áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Þeirri beiðni var mætt af fálæti og fjármálaráðherra fullyrti ítrekað að verðbólga myndi ekki fara fram úr verðbólgumarkmiði. Enn fremur lofaði fjármálaráðherra því að ef svo færi yrði gripið til aðgerða. Nú hefur þetta gerst og Hagsmunasamtök heimilanna reynst sannspá. Samt bólar ekkert á þeim vörnum sem lofað var.

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna skorar á stjórnvöld að standa við það loforð sem þau gáfu við upphaf heimsfaraldursins um að bregðast við ef verðbólga færi á flug í kjölfarið og vernda heimilin fyrir áhrifum þess á verðtryggðar skuldbindingar þeirra. Það er fráleitt að skuldir heimilanna hafi hækkað vegna veiru frá fjarlægri heimsálfu sem þau bera enga ábyrgð á. Við krefjumst þess að stjórnvöld standi við loforð sín og leiðrétti þá hækkun! 

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna




© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum