Niðurstöður aðalfundar 2021
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2021 var haldinn 23. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
- Vilhjálmur Bjarnason varaformaður
- Sigríður Örlygsdóttir gjaldkeri
- Einar Valur Ingimundarson ritari
- Hafþór Ólafsson meðstjórnandi
Varamenn: Þórarinn Einarsson, Björn Kristján Arnarson, Hólmsteinn Brekkan, Stefán Stefánsson, Ragnar Unnarsson.
Þau hafa öll starfað áður í stjórn samtakanna.
Aðalfundurinn samþykkti að félagsgjöld 2021 verði óbreytt 4.900 kr. og valkvæð sem fyrr.
Þá voru skoðunarmenn reikninga samtakanna, Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir og Sólveig Sigurgeirsdóttir, endurkjörnar.
Á fundinum var samþykkt eftirfarandi tillaga að breytingu á samþykktum samtakanna:
- 1. málsliður 1. mgr. 9. gr. orðist svo:
- Stjórn samtakanna skal skipuð 5 aðalmönnum og 3-5 til vara, sem kosnir skulu á aðalfundi samtakanna.
- 4. málsliður 1. mgr. 10. gr. orðist svo:
- Stjórnarfundir eru lögmætir ef 4 eða fleiri stjórnarmenn eða varamenn þeirra eru mættir.
Loks samþykkti aðalfundurinn eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna lýsir því yfir að ekki komi til greina að selja ríkisbankana, hvorki að hluta né öllu leyti, fyrr en Alþingi hafi séð til þess að farið verði ofan í saumana á þeirri meðferð sem heimilin máttu þola í kjölfar bankahrunsins af hálfu fjármálafyrirtækja og stjórnvalda, með því að láta gera Rannsóknarskýrslu heimilanna.
Hagsmunasamtök heimilanna fóru fyrst í mars á síðasta ári fram á að þak yrði sett á verðtryggingu lána heimilanna til að vernda þau fyrir áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Þeirri beiðni var mætt af fálæti og fjármálaráðherra fullyrti ítrekað að verðbólga myndi ekki fara fram úr verðbólgumarkmiði. Enn fremur lofaði fjármálaráðherra því að ef svo færi yrði gripið til aðgerða. Nú hefur þetta gerst og Hagsmunasamtök heimilanna reynst sannspá. Samt bólar ekkert á þeim vörnum sem lofað var.
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna skorar á stjórnvöld að standa við það loforð sem þau gáfu við upphaf heimsfaraldursins um að bregðast við ef verðbólga færi á flug í kjölfarið og vernda heimilin fyrir áhrifum þess á verðtryggðar skuldbindingar þeirra. Það er fráleitt að skuldir heimilanna hafi hækkað vegna veiru frá fjarlægri heimsálfu sem þau bera enga ábyrgð á. Við krefjumst þess að stjórnvöld standi við loforð sín og leiðrétti þá hækkun!