Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Dómstólar baki ríkinu ekki bótaskyldu

Dómstólar baki ríkinu ekki bótaskyldu

Hagsmunasamtök heimilanna fagna áliti EFTA dómstólsins um túlkun á þeim reglum sem gilda um lánaskilmála sem kveða á um breytilega vexti. Þó að um álit sé að ræða verða íslenskir dómstólar að fylgja því, enda geta þeir annars gert íslenska ríkið bótaskylt.

Hagsmunasamtök heimilanna leggja áherslu á að:

  • Álitið gefur afdráttalaust til kynna að umræddir skilmálar séu óréttmætir.

  • Lánveitendur sem sömdu hina óréttmætu skilmála bera sjálfir ábyrgð á því.

  • Óréttmætum skilmálum skal víkja til hliðar en samningarnir gilda að öðru leyti án breytinga.

  • Lánveitendum ber að endurgreiða með dráttarvöxtum allt fé sem þeir hafa oftekið á grundvelli óréttmætra skilmála, umfram þá vexti sem komu fram í samningi frá upphafi.

  • Endurkröfuréttur neytenda skal gilda að minnsta kosti jafn lengi og samningarnir.

  • Hafi neytandi einhverntíma greitt lægri vexti en upphaflega komu fram í samningi skal fullnaðarkvittun gilda.

Því miður hefur sagan sýnt að þegar fjármálafyrirtæki brjóta á réttindum neytenda, virðast dómstólar leita allra leiða til að leysa þá undan ábyrgð. Hagsmunasamtök heimilanna ítreka því að slík háttsemi getur bakað ríkinu bótaskyldu á kostnað almennings. Samtökin vonast til þess að nú muni dómstólar aðeins dæma eftir lögunum með rétt neytenda í fyrirrúmi eins og þeim ber skylda til.

Hagsmunasamtök heimilanna minna einnig á að árið 2010 var dómsmáli um lán með ólögmætum skilmálum veitt flýtimeðferð og sett Íslandsmet í málshraða. Frá þingfestingu málsins í héraði liðu aðeins 79 dagar þar til dómur Hæstaréttar Íslands lá fyrir. Sá mikli flýtir var sagður nauðsynlegur vegna „almannahagsmuna“ og “til að eyða óvissu”. 

Sambærileg flýtimeðferð fyrir dómstólum hlýtur að vera nauðsynleg núna enda eru gríðarlegir almannahagsmunir í húfi og brýnt að eyða allri óvissu um lögmæti skilmála um breytilega vexti í lánum til íslenskra neytenda.

Hagsmunasamtök heimilanna

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum