Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Nágrannavarsla heimilanna

Frést hefur af grunsamlegum mönnum á ferð að taka myndir af heimilum fólks. Við látum hér bréf aðstoðar yfirlögregluþjóns fylgja með um leið og við hvetjum fólk til að hafa augu og eyru opin.

"Sæll Jón Ragnar.

Við höfum verðir að fá tilkynningar um grunsamlegar
mannaferðir í ásunum þ.e. Heiðarási, Grundarási, Klapparási
og fleiri götum þar sem um er að ræða gangandi menn á
aldrinum 20 til 30 ára.  Í einhverjum tilvikum hafa þeir
verið að taka ljósmyndir af húsum og í öðrum hafa þeir
vakið athygli árvökulla íbúa og þótt grunsamlegir.  Styggð
hefur komið að mönnum í einhverjum tilvikum þegar þeir
veittu því athygli að íbúar voru að fylgjast með þeim.

 

Mennirnir eru sagðir  fótgangandi og oft með bakpoka.  Þeir eru sagðir
vera  útlendingar sem tala bjagaða íslensku.  Samskonar tilkynningar hafa
borist um mannaferðir í Grafarvogi og í einu tilviki var aðili sem
lýsingin á við kominn inn í hús þar sem húsráðandi var heimavið.  Sá bar
því við að hann hefði farið húsavillt.

Ertu til í að senda þennan póst á götustjóra nágrannavörslunnar og biðja
menn að vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum mannaferðum á þínu svæði.
Það hefur sýnt sig að nágrannavarslan í Árbæjarhverfi er mjög vel virk og
vakandi og það er ánægjulegt fyrir okkur að geta starfað með slíku fólki.
Ég er viss um að með samstilltu átaki lögreglunnar og íbúa náum við
árangri í að fækka innbrotum.

Ef þið hafið einhverjar spurningar hafið þá endilega samband.

Bestu kveðjur og góða helgi"

Árni Þór Sigmundsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn
Lögreglustöð 4.
Árbæjar- Selás- Grafarvogs- Grafarholts- og Grundarhverfi.
Mosfellsbær og Kjósarsýsla
Sími 444 1812


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum