Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Myndskeið (tekið af eldri síðu)

Myndskeið úr viðtölum og starfi samtakanna auk efnis sem hefur vakið athygli okkar. (Myndbönd óvirk þegar þetta var fært yfir).

Austurvöllur, 23. maí 2009

 

Silfur Egils, 15. febrúar 2009: Björn Þorri Viktorsson (Lögmaður og fasteignasali), 1 af 2

 
 

Silfur Egils, 15. febrúar 2009: Björn Þorri Viktorsson (Lögmaður og fasteignasali), 2 af 2 Haraldur Líndal Haraldsson (Hagfræðingur), 1 af 2

 
 

Silfur Egils, 15. febrúar 2009: Haraldur Líndal Haraldsson (Hagfræðingur), 2 af 2 Álfheiður Ingadóttir (VG), 1 af 2

 
 

Silfur Egils, 15. febrúar 2009: Álfheiður Ingadóttir (VG), 2 af 2 Árni Guðmundsson (Heimspekingur)

 

Silfur Egils 8. febrúar 2009: Ásta Rut Jónasdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna:

 



Silfur Egils 1. febrúar 2009, viðtal við Gunnar Tómasson hagfræðing, 1 af 3:

 

 

Silfur Egils 1. febrúar 2009, viðtal við Gunnar Tómasson hagfræðing, 2 af 3:

 

Silfur Egils 1. febrúar 2009, viðtal við Gunnar Tómasson hagfræðing, 3 af 3:

 

Stöð 2 - Ísland í Dag: Viðtal við Ástu Rut Jónasdóttur og Björn Inga Hrafnsson:

 

Fréttir á Stöð 2: Hagsmunasamtök heimilanna hóta aðgerðum:

 
Lesa áfram...

Viðtöl við fulltrúa samtakanna

 

Áhugaverð viðtöl við fulltrúa stjórnar í fjölmiðlum á árinu um húsnæðismál, neytendarétt og fleira.

 


 

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna í viðtali hjá Bylgjunni/ Reykjavík síðdegis um kjarasamninga og húsnæðismál í apríl 2019.

Reykjavík síðdegis 5. apríl 2019 - Þeir sem illa fóru út úr hruninu gerðir gjaldgengir á ný 

 


Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Vilhjálmur Bjarnason, varaformaður Hagsmunasamtaka heimilanna í viðtali hjá Markúsi Þórhallsyni á Útvarpi Sögu í júní 2019. 

Útvarp Saga 4. júní 2019 - Samfélagið ekki byggt upp fyrir venjulegt fólk

 


Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna í viðtali í þættinum Harmageddon á X-inu um nauðungarsölur og stöðu heimilanna almennt - júní 2019. 

 

Harmageddon - Heimili  enn að fara á nauðungarsölum

 


 

Guðmundur Ásgeirsson lögfræðingur Hagsmunasamtaka heimilanna í hádegisviðtalinu á Útvarpi Sögu um ýmsar hliðar neytendaréttar.

 Útvarp Saga - Hádegisviðtalið 9. ágúst 2019

 


 

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum