Verðtryggt lán eða vanskil?
Ráðgjafarþjónusta samtakanna
Hagsmunasamtök heimilanna fordæmdu nýlega fjórtándu vaxtahækkun seðlabankans í röð og áréttuðu að ekkert réttlætti sífelldar árásir á heimilin. Aukin greiðslubyrði fasteignalána hefur verið mörgum heimilum allt of þungur baggi og því hafa lánþegar nú streymt yfir í verðtryggð fasteignalán. Fjölmargir íbúðarkaupendur neyðast því til þess að grípa til þessarar ráðstöfunar, til þess eins að vera í skilum. Húsnæðisöryggi er í húfi.
Forvörn við greiðsluvanda
Í þessum fjárhagslegu áskorunum bjóða Hagsmunasamtök heimilanna félagsmönnum aðstoð sem er í senn réttindagæsla og lausnamiðuð þjónusta. Ófyrirsjáanleikinn og sveiflur í greiðslubyrði fasteignalána hefur þar að auki óneitanlega valdið mörgum lánþegum fjárhags- og félagslegum vandkvæðum. Það er ekki sanngjart að ætla leikmönnum að reka íbúðarkaup eins og um áhættufjárstýringu sé að ræða. Félagsmenn geta sent samtökunum fyrirspurn á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. um greiðslumat, endurfjármögnun, réttindi lánþega og margt fleira.
Fólk leitar til samtakanna vegna hrunskulda
Viðtal við formann Hagsmunasamtaka heimilanna í Reykjavík síðdegis - 26. ágúst síðastliðinn hefur vakið athygli. Fólk hefur í kjölfarið leitað til samtakanna eftir ráðgjöf og nýir félagsmenn hafa bæst í hópinn. Í viðtalinu vakti formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir athygli á því að ennþá sé fólk fast á vanskilaskrá vegna gamalla hrunskulda.
Oftar en ekki er um að ræða einstaklinga sem misstu heimili sitt í hruninu. Húsnæðið var selt á uppboði undir markaðsverði og jafnvel þó bankinn sé fyrir löngu búinn að fá greitt að fullu upp í sína kröfu, þá er fólk ennþá fast á vanskilaskrá og fær enga fyrirgreiðslu. Hrunið er því miður enn að hafa áhrif á lífsskilyrði fólks sem missti eigur sínar vegna gjaldþrota bankanna. Það er fyrir löngu orðið tímabært að þessir einstaklingar endurheimti líf sitt.
Samtökin hafa lengi vakið athygli á málefnum þessa hóps en mætt daufum eyrum. Við munum halda áfram að halda málefnum þeirra á lofti, ásamt öðru sem úr þarf að bæta í viðskiptum venjulegs fólks á fjármálamarkaði.
Reykjavík síðdegis: Margir sem fóru illa út úr hruninu komast ekki af vanskilaskrá - Reykjavík síðdegis 26. ágúst
Hagsmunasamtök heimilanna
Óháð ráðgjöf og réttindagæsla á fjármálamarkaði
Sendu okkur fyrirspurn á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ef þú þarfnast óháðrar ráðgjafar vegna viðskipta þinna við fjármálastofnanir.
Hagsmunasamtök heimilanna bjóða félagsmönnum og öðrum sem til samtakanna leita óháða lögfræðiráðgjöf á fjármálamarkaði.
Við leggjum áherslu á að svara öllum fyrirspurnum og eins fljótt og kostur er.
Í mikilvægum lánaviðskiptum, eins og fasteignalánum þarf venjulegt fólk að hafa aðgang að óháðri ráðgjöf án aðkomu bankanna.
Einokun bankanna í ráðgjöf á fjármálamarkaði er tímaskekkja. Þú átt rétt á óháðri ráðgjöf. Ekki hika við að hafa samband.
Réttindagæsla á fjármálamarkaði
Samstaða og samtakamáttur vega þungt í mikilvægum réttindamálum og bættum kjörum. Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 í kjölfar gjaldþrota bankanna. Síðan þá hafa samtökin staðið vörð um réttindi heimilanna í viðskiptum á fjármálamarkaði með baráttu í margvíslegum hagsmunamálum. Einn veigamikill hlekkur í starfsemi samtakanna hefur einmitt verið aðstoð og ráðgjöf til félagsmanna. Samtökin stefna að því að efla og styrkja þá starfsemi og vilja nú bjóða aðild að samtökunum og með því aðgang að óháðri ráðgjafaþjónustu. Árgjald Hagsmunasamtaka heimilanna er 4.900 krónur og er valkvætt. Aðild er því eins hagstæð og sveigjanleg og nokkur kostur er.
Við viljum því bjóða þér að skrá þig í samtökin. Það getur þú gert hér: Félagaskráning í Hagsmunasamtök heimilanna.
Við erum 8.400 og viljum verða miklu fleiri!