Á döfinni

Skilningsleysi á skaðsemi verðtryggingar

Guðmundur Ásgeirsson skrifar

Seðlabankastjóra þykir staðan á fasteignamarkaðinum illskiljanleg og einkennilegt hvernig hann hafi hagað sér undanfarið. Enn sé liðurinn greidd húsaleiga að hækka í vísitölu neysluverðs hjá Hagstofunni og það sé eitthvað sem Seðlabankinn eigi erfitt með að átta sig á. „Það hefur að einhverju leyti verið erfitt fyrir okkur að skilja nákvæmlega af hverju það gerist,“ segir hann og bætir við: „Það virðist vera að það sé enn einhver þrýstingur til staðar sem kemur illa heim og saman við að við erum að sjá íbúðum á sölu fjölga.“ (mbl.is)

Sambærileg ummæli komu einnig fram í máli aðalhagfræðings seðlabankans rétt undir lokin á vefútsendingu vegna yfi­r­lýs­ing­ar pen­inga­stefnu­nefnd­ar 8. október 2025.

Þessi ummæli eru afar sorglegur vitnisburður um fullkomið skilningsleysi þessara launaháu embættismanna á gangverki fjármálakerfis sem enginn hefur kosið þá til að stjórna enda hefur þeim gjörsamlega mistekist það. Þess í stað hafa þeir komið sér og þar með þjóðinni allri í sjálfheldu – vítahring verðtryggingar og skammsýni.

Þessum svokölluðu "sérfræðingum" til fróðleiks er auðvelt að benda á meginorsök þeirra þrálátu hækkana á húsnæðislið vísitölu neysluverðs sem þeir klóra sér í kollinum yfir. Það var nefnilega gert í umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna 25. september síðastliðinn um frumvarp um tilteknar breytingar á húsaleigulögum.

Þar var vikið að þeirri breytingu sem Hagstofa Íslands gerði í júní 2024 á útreikningi húsnæðisliðar vísitölu neysluverðs, að í stað þess að miða mat á kostnaði vegna eigin húsnæðis við húsnæðisverð og raunvexti yrði framvegis miðað við húsaleiguígildi:

Þrátt fyrir minni sveiflur er þessi aðferð þó langt frá því að vera gallalaus, einkum vegna þess að yfirgnæfandi meirihluti leigusamninga eru verðtryggðir sem leiðir af sér óhjákvæmilega víxlverkun milli mánaða. Mælikvarði sem mælir sig sjálfan getur aldrei talist marktækur. Þessum reikniaðferðum þarf því að breyta þannig að litið sé fram hjá áhrifum verðtryggingar til að stemma stigu við því að verðbólga geti orðið sjálfnærandi.

Þetta er engin kenning sem var fundin upp á skrifstofu samtakanna heldur ábending sem byggist á skýringum sem komu fram neðst á bls. 10 í greinargerð Hagstofunnar sjálfrar um fyrrnefnda breytingu á útreikningi húsnæðisliðarins frá 26. mars 2024, en þar segir:

Töluverður hluti húsaleigusamninga fyrir íbúðarhúsnæði er með verðtryggingarákvæðum ... Í heild voru um tveir þriðju hlutar leigusamninga með slíkum verðtryggingarákvæðum um mitt ár 2024.

Áhrif verðtryggingar í leigusamningum birtast með þeim hætti í húsaleiguígildislíkaninu að allir samningar sem innihalda slík ákvæði eru uppfærðir mánaðarlega í samræmi við samninginn. Þannig má segja að leigusamningar af þessu tagi leiði af sér óhjákvæmilega víxlverkun milli mánaða.

Nánast allir sem nú tjá sig um vexti og verðtryggingu virðast loksins vera búnir að átta sig á hinum skaðlegu áhrifum mikillar útbreiðslu verðtryggingar hér á landi, meira að segja aðrir bankastjórar. Í grein bankastjóra Arion banka, "Hring­ekja verðtryggingar og hárra vaxta", sem birtist 7. október síðastliðinn segir meðal annars:

Það gefur augaleið að þegar heimilin geta einfaldlega fært sig aftur yfir í verðtryggð íbúðalán, og jafnvel aukið þar með mánaðarlegar ráðstöfunartekjur sínar, minnka áhrif stýrivaxtahækkana Seðlabankans. Að auki þá leiða háir vextir til ákveðins vítahrings þar sem þeir draga úr eftirspurn á fasteignamarkaði en einnig framboði því verktakar veigra sér við að ráðast í byggingaframkvæmdir. Á tímum þegar fólksfjölgun er umtalsverð verður ekki hjá því komist að framboðsskortur leiði til hærra íbúðaverðs og þar með aukinnar verðbólgu. Vextir þurfa þar af leiðandi að hækka enn frekar og haldast háir lengur en ella. Hið háa vaxtastig sem við búum við í dag skýrist meðal annars af þessari hringekju verðtryggingar og hárra vaxta.

Ýmsir fleiri hafa áður fjallað um þennan stórskaðlega vítahring. Þar á meðal Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis í grein sem birtist 15. júní 2023 en í undirkaflanum "Vítahringur verðtryggingar" segir:

Eitt af helstu vandamálunum sem við glímum við í öllu þessu verðbólgustússi er verðtrygging. Verðtryggð lán þýða til dæmis að ef það er verðbólga þá hækkar krónutala lánanna umsvifalaust til þess að jafna út verðgildi lánanna. Með öðrum orðum, ef verðbólgan er 10%, þá hækkar verðtryggða lánið um 10%. Ef verðbólgan er 10%, þá hækkar húsaleigan um 10%. Vandamálið er að vísitala neysluverðs mælir til dæmis breytingar á húsaleigu. Þannig að ef húsaleigan hækkar þá hækkar verðbólgan og af því að verðbólgan hækkar þá hækkar húsaleigan, og svo framvegis.

Þetta er vítahringur, sem þýðir að hækkun á einum stað smitar út frá sér og hækkar allt annað sem er verðtryggt. Þegar bensín hækkar þá gengur það í bylgju yfir allt samfélagið og hækkar allt annað til samræmis. Um leið og allt annað hækkar þá veldur sú hækkun annarri (þó minni) bylgju, og svo framvegis þangað til þessi eina hækkun hefur gengið fram og til baka og hækkað allt sem hækka má.

Við verðum að rjúfa þennan vítahring. Það má ekki vera þannig að hækkun á húsaleigu valdi hækkun á húsaleigu bara af því að fyrsta hækkunin mælist í vísitölunni. Verðtryggingin er efnahagslegt hryðjuverk, þegar allt kemur til alls. Hún veldur ákveðinni leti í efnahagsstjórninni og varpar allri áhættu á lántakendur eða aðra þolendur verðtryggingarinnar. Lánveitendur eru á sama tíma tryggðir með belti og axlaböndum.

Fleira mætti nefna eins og Hagsmunasamtök heimilanna gerðu í umsögn 11. nóvember 2024 um þingmannafrumvarp um afnám verðtryggingar lána til neytenda (en það er vel að merkja byggt á frumvarpi sem samtökin sömdu árið 2013). Í umsögninni er m.a. bent á að:

Vegna þeirrar frestunar greiðslubyrði sem er innbyggð í verðtryggð lán er hún lægri en ella í byrjun lánstímans en það er blekkjandi...

Framangreind fölsun greiðslumats vegna verðtryggðra lána gerir neytendum kleift að taka hærri lán en ella og nota þau til að kaupa sér húsnæði fyrir hærra verð en ella. Þetta hefur í för með sér aukinn þrýsting til hækkana á húsnæðisverði og hafa verið færð rök fyrir því að það sé ein af skýringum þess að húsnæðisverð hefur tekið stórfelldum hækkunum hér á landi undanfarna áratugi... Þar sem húsnæðisverð hefur lengst af verið innifalið í vísitölu neysluverðs hefur þetta aukið verðbólgu og valdið miklum sveiflum í henni. ... Þetta breytist ekki þó að Hagstofan hafi nýlega breytt útreikningi húsnæðisliðar vísitölunnar og byrjað að miða hann við leiguverð í stað fasteignaverðs þar sem flestir leigusamningar eru verðtryggðir og undirliggjandi fjármögnun húsnæðis er líka verðtryggð að stóru leyti.

Mikil útbreiðsla lána með neikvæða afborgun eins og á við um verðtryggð lán hefur það í för með sér að peningamagn í umferð vex hraðar en ella, en of mikill vöxtur peningamagns í umferð er einn þeirra þátta sem geta knúið verðbólgu. Samkvæmt útreikningum sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa gert má skýra stærstan hluta verðbólgu undanfarinn áratuga með þessum áhrifum en ef leiðrétt væri fyrir þeim hefði verðbólga hér á landi verið lítil sem engin það sem af er þessari öld. Þó að verðtryggingu hafi upphaflega verið komið á til að bregðast við mikilli verðbólgu hefur hún því ekki lagað það vandamál heldur þvert á móti gert það verra og valdið aukinni verðbólgu.

Verðtrygging þvælist fyrir peningastefnu Seðlabanka Íslands með því að fresta áhrifum breytinga í efnahagslífinu til framtíðar og dylja þau þannig fyrir neytendum. Það má í raun kalla hana einskonar deyfilyf sem gerir almenning ónæman fyrir efnahagslegum sársauka til skemmri tíma án þess þó að lækna orsakir hans til lengri tíma, sem gerir meinið aðeins verra þegar upp er staðið. Þetta neyðir svo Seðlabankann til að beita stýrivaxtatæki sínu af meiri hörku en ella svo að það bíti, sem leiðir til þess að vaxtastig verður sveiflukenndara og að jafnaði hærra en það myndi annars þurfa að vera.

Þetta eru ekki heldur kenningar sem voru fundnar upp á skrifstofu samtakanna heldur byggjast ábendingarnar meðal annars á því sem Dr. Ólafur Margeirsson hagfræðingur hefur skrifað um málefnið, meðal annars í umsögn 4. desember 2022 um fyrrnefnt frumvarp um afnám verðtryggingar, ásamt rannsókn Dr. Jacky Mallet lektors við Háskólann í Reykjavík á áhrifum verðtryggðra lána á íslenska bankakerfið frá árinu 2013.

Skilningsleysi embættismannanna í seðlabankanum verður jafnvel enn sorglegra í ljósi þess að flest allt sem hér hefur verið rakið hefur legið fyrir sem augljós sannindi um langt árabil, eins og athugasemdir með þingsályktunartillögu um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi sem var samþykkt á Alþingi 28. júní 2013 bera vott um:

... Einnig mun kerfisbreyting úr verðtryggðum lánum yfir í óverðtryggð hafa í för með sér að vaxtastig í landinu verður stöðugra þar sem breytingar á vöxtum munu hafa skjótvirkari áhrif. Slík breyting hefur jákvæð áhrif á hagkerfið í heild. Með þessu móti verður hagstjórn skilvirkari. Þekkt er að verðtrygging viðheldur verðbólgu.

... Auk þess eru hagfræðileg rök sem lúta að peningamálastjórnun þess efnis að skilvirkara sé að hafa áhrif á einkaneyslu í kerfi þar sem óverðtryggð lán eru stór hluti útgjalda heimila. Það er betra fyrir hagstjórnina ef fjármagnskostnaður er greiddur jafnóðum í stað núverandi fyrirkomulags þar sem fjármagnskostnaði er velt inn í framtíðina.

Í skýrslu verðtrygginganefndar frá 2011 sem kannaði forsendur verðtryggingar kom m.a. fram að „... Einnig getur skapast freistnivandi til útlánaþenslu þegar lántakendur bera einir áhættu af verðbólgu umfram væntingar. Loks hafa ýmsir lýst áhyggjum af því að útbreiðsla verðtryggðra jafngreiðslulána dragi úr virkni peningamálastefnu seðlabanka á heildareftirspurn í hagkerfinu.“

Augljóslega er engin leið til að leysa okkur úr sjálfheldunni nema með því að rjúfa þennan stórskaðlega vítahring. Það geta seðlabankinn og stjórnvöld reyndar auðveldlega gert með þremur einföldum aðgerðum: lækkun vaxta, afnámi verðtryggingar lána til neytenda og leiðréttingu á húsnæðislið vísitölu neysluverðs til að eyða áhrifum verðtryggingar.

Skiljanlega gætu vaknað áhyggjur af áhrifum slíkra kerfisbreytinga á greiðslubyrði sem er eilítið hærri á óverðtryggðum lánum en verðtryggðum, þó reyndar fari sá munur nú ört hverfandi. Slíkar áhyggjur eru þó ástæðulausar því strax og áhrif breytinganna kæmu fram myndu vextir og þar með greiðslubyrði lækka og verða stöðugri í kjölfarið. Greiðslujöfnun fasteignalána hefur jafnframt verið lögbundið úrræði í 40 ár sem mætti auðveldlega laga að óverðtryggðum fasteignalánum til að jafna greiðslubyrði þeirra.

Höfundur er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.

(Greinin birtist upphaflega á Vísi í flokknum Skoðun)

Viðtal um efni greinarinnar í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni föstudaginn 10. október 2025:

Lesa áfram...

Í stríði gegn heimilunum

Vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær er ekkert annað en stríðsyfirlýsing gegn heimilum landsins. Hvergi á byggðu bóli voga seðlabankar sér að fara gegn heimilum landsins með viðlíka hætti og hér og hvergi á byggðu bóli hefur verðbólgan haldist jafn há og hér. Hvert mannsbarn með vott af skynsemi ætti að sjá að vaxtahækkanir Seðlabankans hafa fyrir löngu síðan snúist upp í andhverfu sína og auka beinlínis vandann sem þær eiga að glíma við. Fyrir hverja er verið að berjast við verðbólguna ef ekki fyrir fólkið í landinu?

Fólkið í landinu er ekki til fyrir fjármálafyrirtækin og líf þess á ekki að snúast um að fóðra þau.

Aðgerðaleysi ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar og þar áður þessarar sömu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, gagnvart þessu áhlaupi á heimilin er óverjandi, en því miður ekki fordæmalaust.

Lesa áfram...

Við krefjumst tafarlausrar vaxtalækkunar

Ársverðbólga er nú 5,8% og hefur ekki mælst lægri í tvö og hálft ár eða frá ársbyrjun 2022. Þá voru meginvextir Seðlabanka Íslands 2% en hafa síðan hækkað í 9,25% þar sem þeir hafa nú staðið í 10 mánuði, sem verða að óbreyttu orðnir 12 þegar næsta vaxtaákvörðun er á dagskrá 21. ágúst, þrátt fyrir að verðbólgan hafi lækkað um 43% frá því að hún náði hámarki í febrúar 2023.

Seðlabankinn er fyrir löngu komin á algjörar villigötur með hávaxtastefnu sinni sem ekki stenst nokkra skoðun auk þess að valda heimilum og fyrirtækjum landsins stórfelldum skaða, sem þau verða lengi að jafna sig á.

Húsnæðisverð hefur verið stærsti drifkraftur verðbólgunnar og eina leiðin til að halda aftur af hækkun þess er að auka framboð húsnæðis. Vegna íþyngjandi fjármagnskostnaðar hefur samt dregið úr nýbyggingum og vaxtastefnan er þannig beinlínis farin að vinna gegn tilgangi sínum.

Lesa áfram...

Ekkert réttlætir sífelldar árásir á heimilin

Yfirlýsing frá stjórn samtakanna

Hagsmunasamtök heimilanna fordæma fjórtándu vaxtahækkun Seðlabankans í röð og lýsa yfir áhyggjum af afdrifum heimila sem ekki standa undir sífelldum vaxtahækkunum. Greiðslubyrði húsnæðislána hefur margfaldast og eina „lausn“ margra heimila er að flýja yfir í verðtryggð lán í von um skjól.

Verðtryggð lán veita eingöngu tímabundið svikaskjól en það mun hverfa áður en langt um líður og þá munu tugþúsundir heimila standa á berangri, varnarlaus fyrir ásókn banka, sem eins og dæmin sanna munu ekki hika við að hirða af þeim húsnæðið og senda þau á götuna.

Lesa áfram...

Að brjóta lög í sátt við yfirvöld

Sala Íslandsbanka - Fjármálaeftirlit

Íslenska ríkið eignaðist Íslandsbanka 2015 og sumarið 2021 fór fram almennt útboð á hlutabréfum ríkisins í bankanum. Í marsmánuði 2022 var hlutur ríkisins aftur til sölu en með tilboðsfyrirkomulagi ætluðu hæfum fjárfestum, í lokuðu útboði í umsjón Bankasýslu ríkisins. Seinna söluferli Íslandsbanka hefur verið harðlega gagnrýnt. Fjölmargir Alþingismenn kröfðust þess að rannsóknarnefnd yrði skipuð til að fara yfir ferlið. Ríkisstjórnin hafnaði því en fjármála- og efnahagsráðherra óskaði eftir stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Jafnframt réðst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) í athugun á háttsemi söluaðilanna. Samkvæmt tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallarinnar 9. janúar 2023 kemur fram í frummati FME að bankinn kunni að hafa brotið gegn nánar tilgreindum ákvæðum laga og reglna við framkvæmd sölunnar.  

Formaður stjórnar og alþingiskonan Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefur gagnrýnt seinna söluferli bankans harðlega, bæði á Alþingi og á opinberum vettvangi. Í nýlegri grein fjallar Ásthildur Lóa um undirlægjuhátt yfirvalda í garð fjármálafyrirtækja í aðsendri grein í Heimildinni. Hún heitir: Að brjóta lög í sátt við yfirvöld. Hér er grein formanns Hagsmunasamtaka heimilanna:

Að brjóta lög í sátt við yfirvöld

Íslandsbanki er nú í einhverskonar sáttameðferð hjá Fjármálaeftirlitinu. Enn hefur hvorki verið upplýst um eðli eða alvarleika brota Íslandsbanka, en sagan sýnir að lögbrot fjármálafyrirtækja lúta allt öðrum lögmálum en lögbrot allra annarra og að refsingar, jafnvel fyrir stórfelld brot, hafa verið fáránlega vægar eða jafnvel engar.

Fórnarlömbunum refsað fyrir lögbrot

Á árunum fyrir hrun buðu bankar og önnur fjármálafyrirtæki upp á ólögleg lán. Fjölmargir létu blekkjast og gengu í gildruna. Stjórnendur bankanna og „kerfið“ vissu alveg að gengistryggð lán voru ólögleg. Fjármálaeftirlitið, Seðlabankinn, ríkisstjórnin og aðrir innan stjórnkerfisins létu þau engu að síður afskiptalaus og gerðu engar athugasemdir við veitingu þeirra svo árum skipti. 

Lesa áfram...

Að verja heimilin með því að merja þau

Vextir hafa hækkað um 633% en launþegar eiga að sýna „skynsemi“ í launakröfum.

„Eigi skal höggva“, sagði Snorri Sturluson áður en hann var veginn. Þau orð eiga vel við núna því vaxtahækkun Seðlabankans í morgun er enn einn rýtingur í bakið á heimilum landsins. Aftur skal hoggið í sama knérunn og aftur eru það þau sem minnst hafa og mest skulda sem verst verða úti.

Vaxtahækkanir eru ekki lögmál og alls í ekki í þeim mæli sem Seðlabanki Íslands er að leyfa sér að beita þeim á þessum tímum. Heimili landsins munu langflest standa undir hækkandi vöruverði vegna verðbólgunnar, en þegar „lækningin“ margfaldar byrðar hennar, er hætt við að eitthvað láti undan.

Lesa áfram...

Aðgerðir gegn verðbólgunni verri en verðbólgan sjálf

Yfirlýsing stjórnar

Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla harðlega þeim aðgerðum sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og Seðlabankinn undir stjórn Ásgeirs Jónssonar eru að beita í baráttu við verðbólguna, enda gera þær aðgerðir einungis illt verra fyrir allan þorra almennings á Íslandi. 

Það er líka verulega ámælisvert að forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa varla sést á undanförnum vikum og mánuðum á meðan Ísland er að ganga í gegnum einhverja verstu efnahagskrísu í tugi ára, að bankahruninu 2008 undanskildu. Þau hafa með þessu skeytingar- og aðgerðaleysi sýnt hug sinn í verki gagnvart heimilum landsins. Annað gildir um Seðlabankastjóra sem virðist hins vegar hafa tekið stjórnina (á landinu) og gripið til harðra aðgerða sem gera ekkert annað en að fórna heimilum landsins í opið gin bankanna, án þess að þau fái nokkra björg sér veitt. Það verður að draga þá ályktun að þögn sé sama og samþykki og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur styðji þessar aðgerðir.

Stóraukin útgjöld

Til vitnis um fáránleika þessara aðgerða má benda á könnun ASÍ og Íslandsbanka frá því í júní en þá þegar höfðu mánaðarleg útgjöld fjögurra manna fjölskyldu hækkað um 81.916 krónur á einum mánuði. Af því voru 15.250 krónur vegna hækkunar á mat og bensíni á meðan mánaðarlegar vaxtagreiðslur af 40 milljón króna óverðtryggðu láni höfðu hækkað um 66.666 krónur eða fimmfalt það sem verðbólgan kostaði fjölskylduna.

Lesa áfram...

Tryggjum að enginn missi heimili sitt vegna verðbólgu og vaxtahækkana!

Áskorun - Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent ríkisstjórn Íslands áskorun um að tryggja að enginn missi heimili sitt vegna verðbólgu og vaxtahækkanna.

Ríkisstjórnin kynnti í lok síðustu viku aðgerðir til handa þeim sem verst eru staddir vegna þeirrar verðbólgu sem nú geisar og fyrirsjáanlegra vaxtahækkana bankanna. Hún tók jafnframt ákvörðun um að ráðast ekki í neinar aðgerðir fyrir þá sem þurfa að greiða af húsnæðislánum.

Afleiðingar heimsfaraldurs og stríðs

Frá upphafi heimsfaraldursins hafa Hagsmunasamtök heimilanna kallað eftir vernd fyrir heimilin; að enginn missi heimili sitt vegna afleiðinga heimsfaraldurs enda ekki á valdi einstaklinga eða fjölskyldna að hafa áhrif á afleiðingar hans. Sama á nú við um afleiðingar stríðsátaka í Úkraínu.

Lesa áfram...

Áskorun til peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands

Eftirfarandi áskorun hefur verið send peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands: 

Fyrir hönd VR, Verkalýðsfélags Akraness og Hagsmunasamtaka heimilanna, vilja undirrituð biðla til peningastefnunefndar seðlabankans og um leið seðlabankastjóra, að hækka ekki álögur á heimilin þrátt fyrir aukna verðbólgu.

Ekki auka álögur á heimilin í vaxandi verðbólgu

Vaxtahækkanir geta í einhverjum tilfellum verið réttlætanlegar til að slá á verðbólgu en það á ekki við þegar verðbólgan stafar aðallega af utanaðkomandi aðstæðum sem ekki verða raktar hér, auk skorts á húsnæði sem valdið hefur mikilli hækkun húsnæðisverðs.

Lesa áfram...

Vaxtahækkanir eru ekkert lögmál og engin þörf á þeim

Hagsmunasamtök heimilanna senda áskorun til  ríkisstjórnarinnar og lánveitenda um að halda aftur af vaxtahækkunum.

Samtökin vekja athygli á hvernig heimilin eru nú sem oftar, gjörsamlega berskjölduð fyrir vaxtaákvörðunum lánastofnana.

Eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki í ársbyrjun hafa meginvextir Seðlabanka Íslands verið hækkaðir þrisvar, um 0,25 prósentustig í hvert skipti. Flestir lánveitendur hafa fylgt þeim hækkunum dyggilega eftir með sambærilegum hækkunum á vöxtum húsnæðislána og þannig lagt auknar fjárhagslegar byrðar á stærstan hluta íslenskra heimila.

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed
  • 1
  • 2

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum