Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Íbúðalánasjóði stefnt

FRÉTTATILKYNNING
HH2012V3.2F1
27.09.2012


Málsókn gegn Íbúðalánasjóði vegna verðtryggðs láns

Birt hefur verið stefna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í málsókn á hendur Íbúðalánasjóði sem er sú fyrsta vegna verðtryggðs fasteignaláns. Stefnan markar tímamót í baráttunni gegn verðtryggingu fasteignaveðlána. Hagsmunasamtök heimilanna (HH) hafa staðið að undirbúningi málsins og munu nánari upplýsingar um framgang þess birtast á heimasíðu samtakanna (www.heimilin.is).


HH hafa frá upphafi barist gegn verðtryggingu og bent á að verðtryggðir lánasamningar séu í raun flóknir afleiðusamningar sem gera neytendum ómögulegt að gera sér grein fyrir heildarlántökukostnaði yfir samningstímabilið.

Í málssókn þeirri sem nú er hafin gegn Íbúðalánasjóði vegna verðtryggðs fasteignaláns er byggt á lögum um neytendalán (nr. 121/1994), þar sem skýrt er kveðið á um að tæmandi upplýsingar um heildarlántökukostnað skuli liggja fyrir við undirritun lánasamninga, miðað við raunverulegar forsendur. Eftir gagngera úttekt með lögfræðingum á verðtryggðum lánasamningum telur stjórn samtakanna sýnt að slíkir samningar gangi sannanlega gegn ákvæðum neytendalánalaga um skýra upplýsingagjöf til neytenda.

Það kann ef til vill að koma spánskt fyrir sjónir að lánsform sem notað hefur verið til margra ára hér á landi geti reynst ólögmætt. Þá er kannski við hæfi að minnast þess þegar stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna ásamt lögmönnum, komst að þeirri niðurstöðu í ársbyrjun 2009 að gengistryggð lán sæmræmdust ekki gildandi lögum, eins og Hæstiréttur Íslands staðfesti loks þann 16. júní 2010. Rétt eins og þá er að þessu sinni um að ræða mikilvægt prófmál sem getur haft mikla þýðingu fyrir þann mikla fjölda íslenskra heimila sem sitja uppi með stökkbreytt verðrtyggð lán eftir vísitöluhækkanir í kjölfar bankahrunsins.

f.h. Stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna
Ólafur Garðarsson, formaður stjórnar

 

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum