Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Svar hefur borist frá ESA

Í desember 2011 barst svar frá ESA vegna kvörtunar Hagsmunasamtaka heimilanna, Samtaka lánþega og hóps einstaklinga sem gerðust beinir aðilar að kvörtuninni. Í stuttu máli var svarið á þá lund að ESA tæki ekki afstöðu og vísaði málinu frá. Kvörtunaraðilum var gefinn um mánuður til að gera athugasemdir sem var og gert. Endanlegur úrskurður ESA barst okkur um 7. mars eða svo og er hann á sama veg og áður. ESA var ekki haggað til að taka efnislega afstöðu til kvörtunarinnar og taldi umkvörtunaratriðin ekki falla undir umsýslusvið stofnunarinnar.



Hagsmunasamtök heimilanna biðja félagsmenn velvirðingar á seinni birtingu á svarinu en miklar annir stjórnarmanna valda því að það verður að forgangsraða vinnu. Niðurstaða ESA veldur stjórn HH vonbrigðum eins og gefur að skilja. Segjast verður eins og er að vægi úrskurðar ESA í þróun mála hefur þó minnkað af ýmsum ástæðum. Innlendir dómstólar og þá sérstaklega Hæstiréttur Íslands hefur tekið á einstökum vafaatriðum en reyndar vantar enn að reyni á neytendarétt svo heitið geti.

Í svari ESA er látið sem svo að kvartað hafi verið yfir einkaaðilum þ.e. fjármálastofnunum en það er eingöngu túlkun ESA og við fáum engan botn í þá niðurstöðu satt best að segja. Bent var á í kvörtuninni hvernig fjármálastofnanir gengu á lagið en kvörtunin beindist ótvírætt gegn Alþingi, dómsvaldi og ríkisstjórn. Kvörtunin snerist um framferði stjórnvalda og skort á eftirfylgni við áður innleidd lög um neytendarétt og er það tekið skýrt fram í upphafi kvörtunar. Vart þarf að taka fram að við erum ósammála úrskurði ESA en stofnunin virðist í þessu ljósi hafa takmarkað gildi ef nokkuð fyrir óbreytta borgara og samtök þeirra. Þess má geta að Hæstiréttur hefur sannað svo ekki verður um villst að kvörtun yfir lögum 151/2010 átti svo sannarlega erindi við ESA þar sem þau opnuðu á íþyngjandi afturvirka vaxtaútreikninga á neytendalánum.

Svar ESA


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum