Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Fordæmisgildi Evrópudóms fyrir gengislán hérlendis

Úrskurður Evrópudómstólsins frá því í síðustu viku í slóvensku máli kann að hafa fordæmisgildi fyrir uppgjör gengislána hér á landi, neytendum í hag. Evróputilskipun sú sem dómurinn byggir á, þ.e. 93/13/EEB um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum, hefur verið innleidd í íslensk lög.

Í niðurstöðu sinni vekur Evrópudómstóllinn athygli á því að markmið evróputilskipunarinnar sé að fella út ósanngjarna skilmála, en halda samningnum gildum að öðru leyti ef mögulegt er.  Varðandi það hvort samningur geti í slóvenska málinu staðið án hinna ósanngjörnu skilmála kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að samningnum beri að standa að öðru leyti, ef það er neytandanum í hag.

Samkvæmt niðurstöðu eiga því samningsvextir að gilda út lánstímann, ólíkt þeirri niðurstöðu sem Hæstiréttur Íslands komst að í dómi 600/2011 frá 15. febrúar síðast liðnum, en þar segir að samningsvextir skuli gilda fram að þeim tíma sem gengislán hér á landi voru dæmd ólögmæt, en lægstu óverðtryggðu vextir Seðlabanka Íslands eftir það.

Aðalsteinn Sigurðsson, lögfræðingur sagði í viðtali í sjónvarpsfréttum RÚV um möguleg áhrif Evrópudómsins varðandi gengistryggð lán hérlendis:

,,Ef Hæstiréttur ætlar að ógilda samningsvextina, þá er spurning hvort það megi nokkuð koma í staðinn. Allavega ekki eitthvað sem er óhagstæðara neytandanum heldur en það sem fyrir var”.

sjá nánar hér:

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum